Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2026 23:57 Vegur í austurhluta Kabúl sem er jafnan notaður af flutningabílum. Ap/Siddiqullah Alizai Bandaríkjaher gerði árásir í suðurhluta Íran í dag sem beindust að eldflaugaskotstöðvum og írönskum bátum. Þetta hefur BBC og Fox News eftir miðlægri stjórnstöð hersins. Árásirnar hafi verið hluti af „sjálfsvörn“ til að „vernda hermenn okkar gegn þeirri ógn sem stafaði af írönskum herafla“.
Friðarviðræður standa yfir milli Íran og Bandaríkjanna og vopnahléssamkomulag við lýði. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ríkin skiptast á árásum eftir að það tók gildi. Meðal skotmarka voru skotpallar fyrir flugskeyti og íranskir bátar sem reyndu að koma fyrir tundurduflum, að sögn hersins. „Yfirstjórn Bandaríkjahers heldur áfram að verja hersveitir okkar en sýnir jafnframt aðgát á meðan yfirstandandi vopnahlé varir,“ hefur Fox News og BBC eftir talsmanni. Fox hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að árásirnar gefi ekki til kynna að vopnahléinu sé lokið. Þær komi í kjölfar þess að sprengingar heyrðust á ýmsum svæðum við Hormússund í dag, þar á meðal ein sprenging í Bandar Abbas í suðurhluta Írans. Tilkynnt var um aðrar sprengingar nálægt Sirik og Jask sem stendur við Hormússund. Fox News hefur eftir ónefndum embættismanni að árásum Bandaríkjanna sé „lokið í bili“. Íranir ekki jafn bjartsýnir og Bandaríkjamenn Fulltrúi Írana sagði fyrr í dag að árangur hefði náðst í viðræðum við Bandaríkin um stríðslok en samkomulag væri „ekki á næsta leiti“. Þetta sagði Esmail Baqai, talsmaður utanríkisráðuneytisins, eftir að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að hugsanlega gæti samkomulag náðst í dag. „Það er rétt að við höfum náð niðurstöðu í stórum hluta þeirra mála sem eru til umræðu,“ sagði Baqai í Teheran í dag. „En að segja að þetta þýði að undirritun samnings sé yfirvofandi – enginn getur haldið slíku fram.“ Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu en fjölmiðlar hafa haft eftir ónefndum embættismönnum að samkomulagsdrög feli í sér sextíu daga framlengingu á vopnahléi, enduropnun Hormússunds og áætlun um frekari samningaviðræður um kjarnorkuáætlun Írans. Trump vill ekki flýta sér Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf til kynna um helgina að ríkin væru að nálgast samkomulag. Á sama tíma sagðist hann hafa gefið samningamönnum fyrirmæli um að flýta sér ekki. Rubio virtist fullur bjartsýni þegar hann ræddi við fréttamenn Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, fyrr í dag: „Við héldum að við hefðum einhverjar fréttir að færa í gærkvöldi. Kannski í dag.“ Rubio varaði jafnframt við því að það ætti ekki að „lesa of mikið í þetta“ og bætti við að það „tæki smá tíma að heyra frá Íran“. CBS News segir að bandaríska leyniþjónustan telji að Mojtaba Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, sé í felum á ótilgreindum stað en hann særðist í árás Ísraela sem varð föður hans og forvera að bana á fyrsta degi stríðsins. Þetta er sagt flækja samskipti við sendimenn hans og tefja um leið viðræður við Bandaríkin. Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi. 25. maí 2026 10:19 Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. 24. maí 2026 23:57 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Rubio vongóður um vopnahlé Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi. 25. maí 2026 10:19
Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. 24. maí 2026 23:57