Allegri líklegastur til að taka við af Conte Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. maí 2026 11:02 Massimiliano Allegri og Antonio Conte mættust fyrr á tímabilinu sem þjálfarar AC Milan og Napoli. Francesco Pecoraro/Getty Images Þjálfarahringekjan í ítalska boltanum þetta sumarið er formlega hafin. Massimiliano Allegri, sem var rekinn frá AC Milan í gær, þykir líklegastur til að taka við starfi Antonio Conte, sem hætti hjá Napoli um helgina.
Conte tilkynnti eftir síðasta leik tímabilsins á sunnudag að hann hefði ákveðið að hætta hjá Napoli eftir tvö sigursæl tímabil. Napoli varð Ítalíumeistari á síðasta tímabili og bikarmeistari á þessu tímabili en endaði í öðru sæti í deildinni. Allegri tók hins vegar ekki sjálfur ákvörðun um að hætta hjá AC Milan. Hann var rekinn í gær eftir að hafa tapað lokaleik tímabilsins á sunnudag og mistekist að stýra liðinu inn í Meistaradeildina. Samkvæmt umfjöllun La Gazzetta dello Sport er Allegri líklegastur til að taka við stjórastarfinu hjá Napoli. Vinátta hans við forsetann Aurelio De Laurentiis á stóran þátt í því en forsetinn er með annan mann á blaði, Vincenzo Italiano, og mun ákveða sig á næstu dögum. Allegri þjálfaði AC Milan aðeins í eitt tímabil en hafði náð góðum árangri sem stjóri Juventus 2014-19 og aftur frá 2021-24. Hann hefur líka gert AC Milan að Ítalíumeisturum, tímabilið 2010-11, þó seinni stjórnartíðin þar hafi ekki verið farsæl. Vincenzo Italiano er núverandi þjálfari Bologna í ítölsku deildinni og var áður þjálfari Fiorentina.
Ítalski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira