Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Kjartan Kjartansson skrifar 28. maí 2026 09:34 Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, (t.v.) var staddur í Páfagarði í opinberri heimsókn þegar fréttir bárust af húsleit lögreglu í höfuðstöðvum Sósíalistaflokks hans. AP/Alessandra Tarantino Spænska lögreglan gerði húsleit í höfuðsstöðvum Sósíalistaflokksins, flokks Pedro Sánchez forsætisráðherra, í gær. Leitin er sögð tengjast rannsókn á meintu fjármálamisferli fyrrverandi flokksmanna.
Rannsóknardómari skipaði lögreglu að leggja hald á ákveðin rafræn gögn sem hann telur hafa þýðingu fyrir rannsóknina. Lögreglan segir að húsleitin hafi eingöngu verið bundin við rannsókn þessa tiltekna máls og að ekki hafi verið um allsherjarhúsleit að ræða. Rannsóknin hófst eftir að spænskir fjölmiðlar birtu hljóðupptöku af Leire Díez, sem gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sósíalistaflokkinn, þar sem hún heyrðist ræða um að koma höggi á rannsakanda hjá spillingarrannsóknadeild borgaravarðarins, spænsku ríkislögreglunnar. Díez hefur einnig verið sökuð um að reyna að hafa áhrif á saksóknara sem rannsökuðu flokksmenn. AP-fréttastofan segir að rannsóknin beinist að því hvort að Díez hafi þegið fé fyrir. Talsmenn sósíalista hafa fullyrt að Díez hafi ekki unnið í þeirra nafni. Sjálf neitar hún allri sök. Eiginkona og bróðir forsætisráðherrans til rannsóknar Mikið mæðir nú á Sánchez forsætisráðherra vegna hrinu hneykslismála. Eiginkona hans er sökuð um að hafa notfært sér stöðu sína til þess að fá bakhjarla til þess að styrkja námsbraut sem hún stýrði og yngri bróðir hans er ákærður fyrir sambærilegar sakir. Tveir fyrrverandi ráðherrar flokksins eru einnig sakaðir um mútuþægni en þeir voru nánir bandamenn Sánchez. Í ofanálag hóf dómstóll rannsókn á José Luis Rodríguez Zapatero, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtoga Sósíalistaflokksins, í síðustu viku í tengslum við björgun ríkisins á flugfélagi í kórónuveiruheimsfaraldrinum árið 2021. Zapatero er sakaður um að hafa beitt sér óeðlilega fyrir því að ríkið kæmi flugfélaginu Plus Ultra til bjargar. Hann neitar sök. „Við virðum dómskerfið, við munum vinna með dómstólum og Sósíalistaflokkurinn er staðráðinn í að taka á því af sömu hörku og hingað til ef frekar tilfelli óviðeigandi hegðunar koma upp,“ sagði Sánchez eftir að húsleitin var gerð í höfuðstöðvum flokksins. José Luis Zapatero var forsætisráðherra Spánar frá 2004 til 2011. Hann er sakaður um að hafa beitt áhrifum sínum til þess að tryggja tilteknu flugfélagi björgun ríkisins í heimsfaraldrinum árið 2021. Sú björgun er nú til rannsóknar.Vísir/EPA Forsætisráðherrann hefur þó einnig talað um rannsóknir á eiginkonu hans og bróður séu hluti af rógsherferð gegn honum. Bæði málin eiga rætur sínar að rekja til ásakana samtaka sem kalla sig Hreinar hendur (sp. Manos limpias) og sem tengjast fjarhægriflokkum sem eru andsnúnir minnihlutastjórn Sánchez.
Spánn Erlend sakamál Tengdar fréttir Sánchez boðaður til að bera vitni í spillingarmáli eiginkonunnar Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur verið boðaður til að bera vitni fyrir dómi vegna rannsóknar á meintri spillingu eiginkonu hans sem er grunuð um að hafa notfært sér stöðu sína í viðskiptum. 22. júlí 2024 14:25 Sánchez hættir við að segja af sér Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið að segja ekki af sér. Hann hafði áður sagst vera að íhuga það sökum aðfarar hægriafla að sér og eiginkonu sinni. 29. apríl 2024 10:25 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Sjá meira
Sánchez boðaður til að bera vitni í spillingarmáli eiginkonunnar Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur verið boðaður til að bera vitni fyrir dómi vegna rannsóknar á meintri spillingu eiginkonu hans sem er grunuð um að hafa notfært sér stöðu sína í viðskiptum. 22. júlí 2024 14:25
Sánchez hættir við að segja af sér Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur ákveðið að segja ekki af sér. Hann hafði áður sagst vera að íhuga það sökum aðfarar hægriafla að sér og eiginkonu sinni. 29. apríl 2024 10:25