„Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Jakob Bjarnar skrifar 28. maí 2026 11:03 Guðni Ágústsson bendir á að kosið verði á sjálfum höfuðdeginum, þegar Jóhannes skírari var afhöfðaður. vísir/vilhelm Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, ritar hálfgerða heimsósómagrein í Morgunblaðið. Greinin birtist í morgun en þar getur hann vart tekið nógu djúpt í árinni; hann talar eindregið fyrir því að fólk segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem verður á höfuðdeginum sjálfum.
Vísir heyrði í Guðna og spurði heimskulega; þetta er þitt hjartans mál? „Hvað heldur þú? Frelsi lands og þjóðar!“ segir Guðni og telur þetta umdeildasta mál sem lagt hefur verið fyrir Íslendinga. „Klýfur þjóðina í herðar niður. Þarna eru miklar tilfinningar, menn vita að það er ekkert við núverandi aðstæður að sækja í Evrópusambandið. Þetta er skuldabandalag. Við viljum verja fullveldið og Ísland og fjallkonuna okkar. Og segjum nei. „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni.“ Höfuðdagur er 29. ágúst þegar Jóhannes skírari var afhöfðaður Guðni segir Ísland eina ríkustu þjóð heims ásamt Noregi og Sviss. Göngum við í Evrópubandalagið séum við að greiða þvílíka peninga og að við töpum auðlindum okkar. „Sérfræðingar sem gerðu fyrir mig skýrsluna Sveitalíf 2025 fyrir tuttugu árum mála dökka mynd. Þar kemur fram að landbúnaðurinn færi eins og í hamförum. Hann myndi hverfa, garðyrkjan, gróðurhúsin … kúabúin yrðu 20 ef við gengjum í sambandið 2012 eins og ráð er fyrir gert í skýrslunni. Aldrei skal víkja! Guðni á vart nógu sterk orð í eigu sinni - hann vill gjalda varhug við því að Íslendingar segi já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst, hvort þeir eigi að fá að kjósa um aðild eða ekki.vísir/vilhelm Sviðsmyndirnar voru gerðar út frá því. Sauðfjárbúskapurinn fór eins og illa, svína og kjúklingabúin hverfa. Eftir 13 ára veru í Evrópusambandinu. Landsbyggðin. Þeir spáðu því þá þessir ungu menn sem enn vinna fyrir atvinnulífið, sveitalífið verður ekki til og matvælalandið Ísland komið til evrópskra bænda.“ Guðni getur vart nógsamlega ítrekað þá alvöru sem fyrir dyrum stendur og klýfur nú þjóðina. „Þetta er mikil alvara sem blasir við og klýfur þjóðina, við eigum betra líf í vændum með því að leggja þessar deilur til hliðar og segja nei á Höfðuðdaginn sjálfan, 29. ágúst.“ Það er mikilvæg dagsetning? „Já, sannarlega. Jóhannes skírari var höggvinn þennan dag.“ Og það mega heita mikilvægar upplýsingar? „Já, mjög mikilvægar,“ segir Guðni og tekur vel utan um orð sín. Tók í lurginn á Þorsteini og Þorgerði Katrínu Greinina í Mogganum kallar Guðni Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur en þar vekur Guðni athygli á áðurnefndri skýrslu, Sveitalíf 2025, sem var unnin fyrir landbúnaðarráðuneytið og Bændasamtökin fyrir um tuttugu árum af þremur sérfróðum mönnum frá Iðntæknistofnun og Netspor, þeim Eiríki Ingólfssyni, sem er látinn, Karli Friðrikssyni og Sævari Kristinssyni. Þar er gert ráð fyrir aðild Íslands að ESB árið 2012 og rýnt í mögulega framvindu á næstu 13 árum þaðan í frá, eða fram til ársins 2025. Þar eru raktar þær hamfarir sem Guðni hefur áður nefnt. Fyrir neðan grein Guðna í Morgunblaðinu er grein eftir Ernu Bjarnadóttur, einn forsprakka Heimssýnar, sem sem einnig varpar fram spurningu: „Hvað merkir að umsóknin sé „enn í gildi“?“ þannig að ljóst er að andstaðan er að magnast á síðum Morgunblaðsins. „Á heildina litið töldu þeir að árið 2025 hefði hefðbundinn búskapur að stórum hluta til horfið og víða með öllu lagst af. Jafnframt komust þeir að þeirri niðurstöðu að fimmta hver bújörð á Íslandi yrði komin í eigu erlendra fyrirtækja og fjárfestingarsjóða tíu árum eftir inngöngu í ESB, þ.e. árið 2022,“ segir í grein Guðna. Guðni segir þessa niðurstöðu uggvænlega og beinir spurningu til forsætisráðherra: „Er það ekki skylda ríkisstjórnarinnar að setja í gang umræðu og rannsókn á því hver yrði raunveruleg staða bænda og landbúnaðarins ef Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu?“ Guðni segir í samtali við Vísi að hann hafi farið í viðtal í hinn merkilega hlaðvarpsþátt Chess After Dark um þessi mál. „Þar tók ég í lurginn á Þorsteini Pálssyni og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Össur Skarphéðinsson reyndi að komast þarna inn, gafst upp og fór til Kína. Við eigum ekkert að vera að fara í þetta apparat.“
Fjölmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Landbúnaður Evrópusambandið Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Fréttir Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum Sjá meira