Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 30. maí 2026 07:32 Viðskiptaráð birti í vikunni greiningu á nýjum gögnum mennta- og barnamálaráðuneytisins um námsframvindu og árangur nemenda eftir grunnskólum. Gögnin varpa ljósi á tvö vandamál í grunnskólakerfinu. Annars vegar sýna þau verulegan mun á því hvernig nemendur úr ólíkum grunnskólum skila sér áfram í gegnum framhaldsskólakerfið. Hins vegar sýna þau að lokaeinkunnir úr grunnskóla eru ekki samanburðarhæfar milli skóla. Nemendur sem koma með sömu einkunn úr ólíkum grunnskólum koma afar misvel undirbúnir í framhaldsskóla. Hvort tveggja er alvarlegt. Ef börn úr sumum hverfum eiga mun erfiðara með að ljúka framhaldsskóla en börn úr öðrum hverfum, og ef einkunnir úr grunnskóla mæla ekki sömu hæfni milli skóla, þá búa börn ekki við sömu tækifæri óháð búsetu. Það er brot gegn jafnræði í skólakerfinu. Gögnin sýna skýrt mynstur Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Í stað þess að ræða þann vanda sem gögnin varpa ljósi á hefur umræðan að stórum hluta snúist um að véfengja gögnin og gera lítið úr þeim ályktunum sem af þeim má draga. Gögnin eru vissulega ekki fullkomin. Það eru gögn sjaldnast. En þau eru nægilega skýr til að sýna skýrt mynstur sem samfélagið má ekki líta fram hjá. Þegar 43 grunnskólar eru bornir saman og niðurstaðan sýnir verulegt misræmi milli skóla og hverfa er ekki hægt að afgreiða það sem tilviljun. Gagnrýni hefur einkum beinst að fyrri hluta greiningarinnar, sem sýnir hlutfall þeirra sem luku framhaldsskóla árið 2024 miðað við stærð viðkomandi grunnskólaárgangs árið 2021. Bent hefur verið á að myndin fylgi ekki nákvæmlega sama hópi nemenda frá útskrift úr grunnskóla til útskriftar úr framhaldsskóla og að nemendur ljúki framhaldsskóla á ólíkum tíma. Þetta er tekið fram í greiningunni og að hlutfall hvers skóla sé í reynd hærra. Aðalatriðið er þó að þetta leggst þvert á alla skólana og mismunur á námsframvindu því sannarlega til staðar. Greiningin sýnir verulegan mun á milli 43 grunnskóla. Í sumum skólum er hlutfallið yfir 80%, en í öðrum undir 50%. Við vitum að félagslegur bakgrunnur, búseta, stuðningur heima fyrir, námsmenning og aðstæður skóla hafa áhrif á námsframvindu. Spurningin er ekki hvort slíkur munur sé til staðar heldur hvort við ætlum að horfast í augu við hann. Afneitun leysir engan vanda Forysta Kennarasambands Íslands og aðrir talsmenn kerfisins hafa ítrekað brugðist við gagnrýni með því að afneita vandanum, véfengja gögn og hafna ályktunum. Mikill skortur hefur verið á samanburðarhæfum gögnum eftir að samræmdu prófin voru aflögð án þess að sambærilegt kerfi kæmi í staðinn. Afleiðingin er sú að umræða um skólakerfið fer fram á grundvelli takmarkaðra gagna. Þegar upplýsingar eru loks birtar er fyrsta viðbragð þessara aðila að véfengja þær. Sem betur fer virðist nú hafa orðið viðhorfsbreyting hjá stjórnvöldum, þar sem mennta- og barnamálaráðherra hefur birt gögn sem varpa ljósi á frammistöðu nemenda úr einstökum grunnskólum í framhaldsskólum. Sú ákvörðun er mikilvæg og gerir samfélaginu kleift að ræða stöðuna á upplýstari hátt. Það er ekki hægt að bæta kerfi sem ekki má mæla. Það er ekki hægt að tryggja jafnræði ef enginn má vita hvort börn njóti sömu tækifæra. Einkunnirnar mæla ekki sömu hæfni Seinni hluti greiningar Viðskiptaráðs snýr að sambandi milli lokaeinkunnar nemenda við lok grunnskóla og frammistöðu þeirra í framhaldsskóla. Niðurstaðan er að lítið samhengi er þar á milli. Það þýðir að einkunnir úr grunnskóla endurspegla ekki sömu hæfni milli skóla. Ef A úr einum grunnskóla þýðir ekki það sama og A úr öðrum grunnskóla, þá er kerfið meingallað. Þegar slíkar ósamanburðarhæfar einkunnir eru síðan notaðar til að úthluta takmörkuðum plássum í eftirsótta framhaldsskóla skapast augljóst ójafnræði. Ragnheiður Stephensen, sem gagnrýndi greiningu Viðskiptaráðs harðlega, bendir sjálf á að hæfniviðmið séu of opin, að ekki sé nægilega skýrt hversu djúpt eigi að fara í námsþætti og að það fari eftir skólum hversu mikil hæfni liggi að baki sömu einkunn. Hún segir að þessu þurfi að breyta og því er Viðskiptaráð sammála. Réttu viðbrögðin Skólar starfa við ólíkar aðstæður og nemendahópar eru ólíkir. Kennarar sinna mikilvægu starfi í samfélaginu, oft við krefjandi aðstæður. Einmitt þess vegna þarf betri mælikvarða. Það er forsenda þess að hægt sé að beina stuðningi þangað sem þörfin er mest. Viðbrögð skólastjóra Fellaskóla sýna hvernig hægt er að nálgast málin með uppbyggilegri hætti. Hann benti á að skólinn starfi við krefjandi aðstæður, meðal annars vegna fjölbreytts bakgrunns nemenda, og að niðurstöðurnar séu hvatning til að gera betur. Markmiðið með greiningu Viðskiptaráðs er að hvetja til úrbóta sem tryggja að börn fái sanngjarnt mat og sömu tækifæri. Til þess þarf samræmda mælikvarða við lok grunnskólagöngu, betri gögn um framvindu nemenda milli skólastiga og markvissari stuðning þar sem þörfin er mest. Misræmi á milli grunnskóla verður ekki skýrt burt með hártogunum um aðferðafræði. Þeir sem afneita því slá skjaldborg um gallað kerfi sem þegar er að bregðast fjölmörgum börnum. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Björn Brynjúlfur Björnsson Grunnskólar Framhaldsskólar Mest lesið Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar