Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Lovísa Arnardóttir skrifar 30. maí 2026 09:32 Andrew Mountbatten-Windsor hefur verið sviptur titlum sínum en hann var áður prins. Vísir/EPA Buckingham-höll fékk fyrir sex árum afhenta tölvupósta sem sýndu að Andrew Mountbatten-Windsor hafði verið að deila ríkisleyndarmálum sem viðskiptasendiherra, meðal annars um vandamál í íslenska bankakefinu. Það sýna fimm ára gömul dómsskjöl í máli Andrews en fjallað er um málið á vef BBC.
Mountbatten-Windsor var handtekinn á heimili sínu í febrúar vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Á vef BBC kemur fram að skjalasafn með 30.000 tölvupóstum, þar sem var að finna upplýsingar um umdeild fjármálaviðskipti fyrrverandi prinsins, hafi verið afhent hirðmarskálki, æðsta embættismanni konungshallarinnar, árið 2020. Í skjölunum er meðal annars fjallað um fall Kaupþings, Icesave og hvernig Andrew hafði upplýsingar sem viðskiptafélagar hans nýttu sér. Í frétt BBC segir að þegar Buckingham-höll var spurð hvað orðið hefði um tölvupóstana hafi hún vísað til yfirstandandi lögreglurannsóknar gegn prinsinum fyrrverandi og að hún gæti því ekki tjáð sig um málið. Í fréttinni segir einnig að í síðustu viku hafi Thames Valley-lögreglan sent frá sér nýja áskorun til almennings um að gefa sig fram með upplýsingar, í kjölfar handtöku Mountbatten-Windsor vegna gruns um brot í opinberu starfi. Leit í dómsskjölum hafi leitt í ljós að stórt safn tölvupósta sem tengjast fjármálum Mountbatten-Windsor hafði þegar verið sent embættismönnum hallarinnar, mörgum árum áður en núverandi rannsóknir hófust. Fjallað er nokkuð ítarlega um skjölin í frétt BBC, hverjir fengu þau afhent og við hvaða aðstæður og hvernig hafi verið fjallað um þau í dómsskjölunum. Í júní 2022 hafi til dæmis komið fram í dómi að tölvupóstarnir hafi verið afhentir höllinni í júlí 2020. Í frétt BBC segir að innihald skjalasafnsins, með tölvupóstum fram til júní 2013, sé ekki að fullu þekkt en vísbendingar hafi komið fram um hversu mikilvægir þeir gætu verið. Vandamál í íslenska bankakerfinu Fyrr á þessu ári var fjallað um það í frétt Telegraph að Mountbatten-Windsor hefði óskað eftir skýrslu frá embættismönnum fjármálaráðuneytisins árið 2010 og síðan deilt henni með persónulegum viðskiptatengilið svo hann gæti nýtt sér upplýsingarnar. Skýrslan fjallaði um vandamál í íslenska bankakerfinu og viðtakandinn var Jonathan Rowland, en faðir hans, David Rowland, hafði tekið yfir Lúxemborgararm Kaupþings, sem síðar varð Banque Havilland. Samkvæmt dómsskjölum höfðu tölvupóstarnir sem sendir voru til hallarinnar verið teknir af reikningi Jonathan Rowland eftir deilur hans við viðskiptafélaga. Samskiptin höfðu svo komist í hendur smásölufjárfestisins Kevin Stanford, fyrrverandi meirihlutaeiganda All Saints, sem hafði átt í annarri deilu vegna fjárfestinga í Kaupþingi. Jonathan Rowland hefur áður staðfest við BBC að þessi skilaboð um íslensku bankana hefðu verið tekin af tölvupósti hans og væru hluti af málaferlum. Það bendir til þess, samkvæmt frétt BBC, að þau hafi verið hluti af skjalasafninu sem síðar var sent til hallarinnar. „Og það var í þeim dómsmálum vegna meints þjófnaðar á tölvupóstunum sem í ljós kom að afrit höfðu verið afhent höllinni,“ segir í frétt BBC og að þó að ekki sé vitað hvað varð um tölvupóstana í höllinni hafi birting Epstein-skjalanna fyrr á árinu sýnt vel hversu náin tengsl Mountbatten-Windsor hafði við Rowland-feðgana. Tölvupóstarnir voru afhentir höllinni á valdatíma Elísabetar II drottningar heitinnar. Harðar hefur verið tekið á málum Mountbatten-Windsor á valdatíma Karls konungs, meðal annars með því að svipta hann titlum sínum. Eftir handtöku Mountbatten-Windsor kom yfirlýsing frá konungi: „Réttlætið verður að hafa sinn gang.“ Mountbatten-Windsor hefur hafnað öllum ásökunum um misgjörðir í tengslum sínum við Jeffrey Epstein og neitað því að hafa haft persónulegan ávinning af hlutverki sínu sem viðskiptasendiherra. Í frétt BBC segir enn frekar að talsmaður lögreglunnar í Thames-Valley hafi ekki getað tjáð sig um tölvupóstana en að þau væru meðvituð um ásakanir sem væru til umræðu. Þá sagði talsmaður ríkisstjórnarinnar að hún ynni með lögreglunni og að í síðustu viku hafi verið birt opinberlega skjöl um viðskiptasendiherrastöðu Mountbatten-Windsor árið 2001 og hlutverk hans.
Mál Andrésar prins Kóngafólk England Bretland Hrunið Tengdar fréttir Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Karlmaður var handtekinn vegna gruns um vopnaburð nærri heimili Andrésar fyrrverandi prins. Fréttir eru um að maðurinn hafi ógnað Andrési þar sem hann var á gangi með hundum sínum. 7. maí 2026 15:43 Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Forsætisráðherra Kanada kallar eftir því að Andrew Mountbatten-Windsor verði tekinn af erfðaröðinni að bresku krúnunni. Fyrrverandi prinsinn var handtekinn fyrir nokkrum vikum, grunaður um brot í opinberu starfi. 7. mars 2026 16:42 Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Peter Mandelson, fyrrverandi þingmaður og sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum, var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 23. febrúar 2026 17:21 Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Sjá meira
Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Karlmaður var handtekinn vegna gruns um vopnaburð nærri heimili Andrésar fyrrverandi prins. Fréttir eru um að maðurinn hafi ógnað Andrési þar sem hann var á gangi með hundum sínum. 7. maí 2026 15:43
Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Forsætisráðherra Kanada kallar eftir því að Andrew Mountbatten-Windsor verði tekinn af erfðaröðinni að bresku krúnunni. Fyrrverandi prinsinn var handtekinn fyrir nokkrum vikum, grunaður um brot í opinberu starfi. 7. mars 2026 16:42
Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Peter Mandelson, fyrrverandi þingmaður og sendiherra Breta gagnvart Bandaríkjunum, var handtekinn í dag vegna gruns um brot í opinberu starfi. Hann missti sendiherrastöðuna í september eftir að nánara ljósi var varpað á vinskap hans við bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. 23. febrúar 2026 17:21