Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 1. júní 2026 13:10 Hólmfríður hefur verið vinkona fjölskyldu Kolfinnu frá unga aldri. Samsett Kolfinna Rán, þrettán ára fótboltastjarna, greindist fyrst með krabbamein einungis rúmlega tveggja ára og aftur fyrir um ári síðan. Vinkona fjölskyldu hennar efnir nú til happdrættis til styrktar Kolfinnu sem hefur sýnt mikla seiglu í veikindunum. Hólmfríður Magnúsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í fótbolta, stendur fyrir styrktarlottói fyrir Kolfinnu. Viðbrögðin hafa ekki staðið á sér og eru í boði 124 vinningar, þar á meðal árituð treyja frá Glódísi Perlu Viggósdóttur, fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins. „Kolfinna var fyrst greind með krabbamein tveggja og hálfs árs og gekk í gegnum sex mánaða lyfjagjöf og fór í yfir þrjátíu geisla. Hún var svæfð í öllum geislunum, frá mánudegi til föstudags, svo var frí um helgar og hún vinnur það, enda algjör nagli,“ segir Hólmfríður í Bítinu á Bylgjunni. „Nú síðasta sumar greindist hún aftur og byrjaði í lyfjameðferð, alls átta lyfjameðferðir, og fór síðan til Svíþjóðar í aðgerð. Þar var tekinn stór hluti af lærleggnum, allt upp að mjaðmakúlunni var fjarlægt og í staðinn var settur sérsmíðaður íhlutur sem var framleiddur í Þýskalandi.“ Það var síðan fyrir nokkrum vikum sem Kolfinna fór í myndatöku þar sem punktur fannst á lunganu sem fjarlægja þurfti með aðgerð. „Þetta er alvöru lífsbarátta sem hún er í.“ Allur ágóðinn á reikning Kolfinnu „Hún er ótrúleg, búin að sýna þvílíka seiglu í þessari baráttu og bara úr því að vera þrettán ára stelpa sem mætir í skólann og leikur við vini sína og fer á öll fótboltamót,“ segir Hólmfríður. Hún minnist þess þegar Kolfinna, eftir eina lyfjagjöfina, þurfti einfaldlega að stoppa í Ikea til að borða og gekk allan hringinn á hækjum. „Hún kemur síðan heim og þá hugsa ég bara vá, allt fólk í landinu gæti tekið eitt skref til baka, horft í spegil og hugsað vá hvað ég hef það gott. Heilsan er alls ekki sjálfsagður hlutur.“ Til að styðja við Kolfinnu ákvað Hólmfríður að efna til styrktarlottós og fer allur ágóðinn á framtíðarreikning Kolfinnu. Lottóið stendur til 15. júní og dregið verður út þann 16. júní. Einn miði kostar 2500 krónur. Reikningsnúmer: 0511-14-120390 Kennitala: 200984-2859 „Þetta byrjaði þannig að ég ætlaði að selja tvær treyjur á uppboði frá Glódísi Perlu, ég hafði samband við hana síðasta sumar og svo var ég bara alltaf með þessar tvær treyjur. Svo núna í þarsíðustu viku ákvað ég að gera þetta aðeins stærra og hafði samband við öll félög sem Olga og Pála, mæður Kolfinnu, hafa spilað með og svo varð þetta bara stærra og stærra. Það er alveg ótrúlegt,“ segir hún. Hólmfríður Magnúsdóttir var valin knattspyrnukona ársins árið 2010.Daníel Alls eru komnir 124 vinningar og bætir Hólmfríður við að það sé ekkert sem toppi Ísland þegar allir standa saman. „Maður verður bara að hugsa jákvætt og hafa trú og það er það sem ég er að reyna að sýna núna, að allir sem taka þátt hafi trú á henni.“ Krabbamein Bítið Bylgjan Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira
Hólmfríður Magnúsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í fótbolta, stendur fyrir styrktarlottói fyrir Kolfinnu. Viðbrögðin hafa ekki staðið á sér og eru í boði 124 vinningar, þar á meðal árituð treyja frá Glódísi Perlu Viggósdóttur, fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins. „Kolfinna var fyrst greind með krabbamein tveggja og hálfs árs og gekk í gegnum sex mánaða lyfjagjöf og fór í yfir þrjátíu geisla. Hún var svæfð í öllum geislunum, frá mánudegi til föstudags, svo var frí um helgar og hún vinnur það, enda algjör nagli,“ segir Hólmfríður í Bítinu á Bylgjunni. „Nú síðasta sumar greindist hún aftur og byrjaði í lyfjameðferð, alls átta lyfjameðferðir, og fór síðan til Svíþjóðar í aðgerð. Þar var tekinn stór hluti af lærleggnum, allt upp að mjaðmakúlunni var fjarlægt og í staðinn var settur sérsmíðaður íhlutur sem var framleiddur í Þýskalandi.“ Það var síðan fyrir nokkrum vikum sem Kolfinna fór í myndatöku þar sem punktur fannst á lunganu sem fjarlægja þurfti með aðgerð. „Þetta er alvöru lífsbarátta sem hún er í.“ Allur ágóðinn á reikning Kolfinnu „Hún er ótrúleg, búin að sýna þvílíka seiglu í þessari baráttu og bara úr því að vera þrettán ára stelpa sem mætir í skólann og leikur við vini sína og fer á öll fótboltamót,“ segir Hólmfríður. Hún minnist þess þegar Kolfinna, eftir eina lyfjagjöfina, þurfti einfaldlega að stoppa í Ikea til að borða og gekk allan hringinn á hækjum. „Hún kemur síðan heim og þá hugsa ég bara vá, allt fólk í landinu gæti tekið eitt skref til baka, horft í spegil og hugsað vá hvað ég hef það gott. Heilsan er alls ekki sjálfsagður hlutur.“ Til að styðja við Kolfinnu ákvað Hólmfríður að efna til styrktarlottós og fer allur ágóðinn á framtíðarreikning Kolfinnu. Lottóið stendur til 15. júní og dregið verður út þann 16. júní. Einn miði kostar 2500 krónur. Reikningsnúmer: 0511-14-120390 Kennitala: 200984-2859 „Þetta byrjaði þannig að ég ætlaði að selja tvær treyjur á uppboði frá Glódísi Perlu, ég hafði samband við hana síðasta sumar og svo var ég bara alltaf með þessar tvær treyjur. Svo núna í þarsíðustu viku ákvað ég að gera þetta aðeins stærra og hafði samband við öll félög sem Olga og Pála, mæður Kolfinnu, hafa spilað með og svo varð þetta bara stærra og stærra. Það er alveg ótrúlegt,“ segir hún. Hólmfríður Magnúsdóttir var valin knattspyrnukona ársins árið 2010.Daníel Alls eru komnir 124 vinningar og bætir Hólmfríður við að það sé ekkert sem toppi Ísland þegar allir standa saman. „Maður verður bara að hugsa jákvætt og hafa trú og það er það sem ég er að reyna að sýna núna, að allir sem taka þátt hafi trú á henni.“
Lottóið stendur til 15. júní og dregið verður út þann 16. júní. Einn miði kostar 2500 krónur. Reikningsnúmer: 0511-14-120390 Kennitala: 200984-2859
Krabbamein Bítið Bylgjan Mest lesið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Lífið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fleiri fréttir „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Sjá meira