HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2026 09:01 Heimsmeistaramótið 1950 var síðasta HM þar sem Brasilíumenn léku í hvítum treyjum með bláum krögum. Eftir áfallið á Maracanã-leikvanginum 1950 tóku þeir upp heimsfrægan búning sinn með gulum treyjum, bláum buxum og hvítum sokkum. Getty/Keystone-France/ Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir sex daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við svartasta dags í sögu brasilíska landsliðsins.
Sjaldan, ef nokkurn tímann, hefur tap á heimsmeistaramóti farið jafnilla með þjóð og þegar Brasilíumenn misstu af heimsmeistaratitlinum 1950. Þetta var eina heimsmeistaramótið sem var ekki opinber úrslitaleikur en lokaleikur Brasilíu og Úrúgvæ var samt sem áður lokaleikur úrslitariðilsins og óopinber úrslitaleikur. Allir héldu að Brasilía myndi þar tryggja sér heimsmeistaratitilinn í fyrsta sinn. Þeir voru á heimavelli með næstum því tvö hundruð þúsund í stúkunni, voru búnir að vinna síðustu leikina á undan með markatölunni 13-2, þeim nægði jafntefli og þeir komust yfir í upphafi seinni hálfleiks. Í stað þess að landa sigri (eða jafntefli) þá misstu Brasilíumennirnir frá sér heimsbikarinn. Úrúgvæ skoraði tvisvar á síðasta hálftímanum og tryggði sér heimsmeistaratitilinn. Juan Alberto Schiaffino jafnaði metin á 66. mínútu og ellefu mínútum fyrir leikslok skoraði Alcides Ghiggia sigurmarkið þar sem hann þaut upp hægri kantinn og skaut lágu skoti sem fór rétt undir markvörðinn Moacir Barbosa. Barbosa hafði búist við fyrirgjöf frá Ghiggia og kastaði sér því augnabliki of seint til að stöðva boltann. Hann varð gerður að skúrki og slapp aldrei við skömmina. Fjölmiðlar og almenningur voru svo sigri hrósandi, byggt á nánast óstöðvandi gengi Brasilíu, að þeir höfðu þegar byrjað að lýsa Brasilíu yfir nýja heimsmeistara dögum fyrir leikinn. Dagblöð eins og Gazeta Esportiva í São Paulo og O Mundo í Rio de Janeiro lýstu yfir sigri daginn fyrir leikinn. Tuttugu og tvær gullmedalíur voru gerðar með nafni hvers leikmanns áletruðu og borgarstjóri Rio, Ângelo Mendes de Moraes, flutti ræðu á leikdegi með orðunum: „Þið, leikmenn, sem eftir örfáar klukkustundir verðið hylltir sem meistarar af milljónum samlanda. Þið, sem eigið ykkur enga keppinauta á öllu vesturhveli jarðar! Þið, sem sigrið alla aðra keppinauta! Þið, sem ég heilsa þegar sem sigurvegurum!“ Þegar leiknum lauk tók við átakanleg alger þögn á troðfullum vellinum. Öll brasilíska þjóðin grét sáran og meðal þeirra var hinn níu ára gamli Pele sem átti seinna eftir að breyta örlögum sinnar þjóðar á HM. Hann talaði seinna um að hafa grátið, grátið og grátið eins og allir í kringum hann. Tapið steypti landinu svo sannarlega í sorg vegna þessa atburðar sem varð þekktur sem Maracanazo, eða „Maracanã-höggið“. Markverðinum Barbosa var kennt um tapið og hann þjáðist vegna þess það sem eftir var ævinnar, þar sem leikurinn varð hluti af brasilískri þjóðsögu. Árið 1963 fékk Barbosa gömlu, ferköntuðu trémörkin af Maracanã-leikvanginum að gjöf, sem hann fór með heim og brenndi. Þrjátíu árum síðar meinaði forseti brasilíska knattspyrnusambandsins, Ricardo Teixeira, honum að vera lýsandi við útsendingu á landsleik. Árið 2000 sagði Barbosa í viðtali: „Hámarksrefsing í Brasilíu er 30 ára fangelsi, en ég hef nú þegar greitt í 50 ár fyrir eitthvað sem ég ber ekki einu sinni ábyrgð á.“ Þann 7. apríl sama ár lést hann úr hjartaáfalli, 79 ára að aldri. Tapið varð einnig til þess að landsliðsbúningurinn var bannaður. Hvítar treyjur Brasilíu með bláum krögum sem liðið klæddist í úrslitaleiknum urðu, í kjölfar ósigursins, fyrir gagnrýni frá íþróttasambandi landsins fyrir að vera „óþjóðræknar“ og fólkið vildi banna búninginn. Árið 1953 með stuðningi brasilíska íþróttasambandsins var haldin keppni af dagblaðinu Correio da Manhã um að hanna nýjan búning, með þeirri reglu að hann yrði að innihalda liti þjóðfánans. Að lokum sigraði teiknarinn Aldyr Garcia Schlee keppnina en hann kom með hönnun að gulri treyju með grænum röndum, bláum stuttbuxum með hvítum röndum og hvítum sokkum. Búningur Brasilíumanna hefur ekki breyst síðan og fært þjóð sinni fimm heimsmeistaratitla en sá fyrsti kom á HM í Svíþjóð átta árum eftir áfallið á Maracanã-leikvanginum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Sjá meira