Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Samúel Karl Ólason skrifar 4. júní 2026 11:21 Starfsmenn FBI á vettvangi. AP/David Dennis Maður sem tók tíu skólastarfsmenn í gíslingu í Kaliforníu í gær var skotinn til bana af lögregluþjónum. Eftir tæplega sextán klukkustunda umsátur um bygginguna þar sem maðurinn hélt fólkinu réðust starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) til atlögu og felldu hann.
Engan annan sakaði. Hinn 41 árs gamli Anthony Scott Searles-Harris ruddist í gær inn á skrifstofu yfirstjórnar skóla í Kernsýslu í Kaliforníu. Hann var vopnaður sprengiefnum og lokaði sig inni á skrifstofunni með tíu gíslum. Hann festi einnig sprengiefni við einhverja af gíslunum, samkvæmt AP fréttaveitunni. Searles-Harris var fyrrverandi hermaður en hann var rekinn þaðan með skömm árið 2007 og átti sér sögu lögbrota. Þá var hann einnig á skrá kynferðisbrotamanna eftir að hafa verið sakfelldur árið 2014 fyrir að brjóta á barni undir fjórtán ára aldri. Honum var sleppt úr fangelsi árið 2018. Einn af gíslunum var í samskiptum við lögreglu yfir nóttina, þar til sími hennar varð rafmagnslaus. Samkvæmt lögreglunni krafðist Searles-Harris þess að fá gögn úr gömlu máli sínu. Hann mun hafa verið ósáttur við hvernig komið var fram við hann, að hann skuli hafa verið dæmdur og hvernig honum var refsað. Áður en hann tók fólkið í gíslingu mun Searles-Harris hafa birt myndbönd á samfélagsmiðlum þar sem hann gagnrýndi lögregluna og sagðist saklaus af glæpunum sem hann var dæmdur fyrir árið 2007. Fyrrverandi lögmaður hans frá árinu 2007 segir Searles-Harris hafa verið veikan og að hann hafi verið sannfærður um að yfirvöld væru á móti honum. Ekki liggur fyrir af hverju hann tók gísla á skrifstofu yfirstjórnar skóla í Kernsýslu.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Sjá meira