Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Lovísa Arnardóttir skrifar 5. júní 2026 08:33 Eyjólfur tók ákvörðunina fyrr í vikunni. Vísir/Vilhelm og Sigurjón Sveitarfélögin Stykkishólmur, Vesturbyggð og Reykhólahreppur harma og mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa Breiðafjarðarferjuna Baldur úr siglingum á Breiðafirði til að sinna auknu álagi við farþega- og ökutækjaflutninga til Vestmannaeyja frá og með 8. júní nk.
Sveitarfélögin sendu frá sér sameiginlega ályktun í gær þar sem þau mótmæla harðlega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa. Þau leggja áherslu á að þau sýni því skilning, og hafi alltaf gert, að Baldur gegni hlutverki varaskips fyrir Herjólf þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp, líkt og samningar gera ráð fyrir. „Sú staða er hins vegar ekki uppi í þessu tilviki þar sem Baldur er færður úr siglingum á Breiðafirði til að mæta aukinni eftirspurn eftir farþega- og ökutækjaflutningum til Vestmannaeyja,“ segir í yfirlýsingunni. Sveitarfélögin telja að ákvörðunin hafi veruleg áhrif á samgöngur, vöruflutninga, atvinnulíf og þjónustu við samfélögin við Breiðafjörð, ekki síst Flatey, og að hún beri vott um alvarlegt skeytingarleysi gagnvart þeim samfélögum sem reitt hafa sig á þjónustu ferjunnar. Í sameiginlegri ályktun sveitarfélaganna er jafnframt ítrekað að mikilvægt sé að ekki verði vikið frá þeim samningsforsendum sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf og að þær forsendur . Þá ítreka þau einnig að þau mörk sem mótast hafa í samskiptum ríkisins og sveitarfélaganna við Breiðafjörð um hlutverk ferjunnar verði virt framvegis. Viðgerð ljúki um miðjan júní Tilkynnt var um breytinguna á þriðjudag en í tilkynningu ráðherra kom fram að báðar ferjurnar, Herjólfur og Baldur, myndu halda úti siglingum til Eyja á meðan unnið er að viðgerð á annarri vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní. Á meðan muni ferjan Særún sigla til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Vísað var til mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni og að þess vegna væri talið nauðsynlegt að varaskipið Baldur bættist við ferjuþjónustu til Eyja á þessu tímabili. „Miklir flutningar eru fyrirhugaðir á fólki og farartækjum, m.a. vegna íþróttaviðburða um helgar,“ sagði í tilkynningu ráðuneytisins.
Ferjan Baldur Herjólfur Vestmannaeyjar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stykkishólmur Vesturbyggð Reykhólahreppur Flatey Landeyjahöfn Tengdar fréttir Sumaráætlun Herjólfs frestað Siglingum Herjólfs samkvæmt sumaráætlun hefur verið frestað. Ástæðan er sögð sú að ferjan sigli enn á einni skrúfu. 2. júní 2026 17:25 Fengu ekki Baldur Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar. 22. maí 2026 11:38 Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki munaður. Þær eru lífæð samfélagsins. Þess vegna olli opinn fundur um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs miklum vonbrigðum hjá okkur Eyjamönnum. Það sem átti að vera fundur um lausnir, framtíðarsýn og ábyrgð varð að stórum hluta upptalning á „náttúruöflum“ og ástæðum fyrir því af hverju hlutirnir séu erfiðir. 18. maí 2026 17:30 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfarenda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira
Sumaráætlun Herjólfs frestað Siglingum Herjólfs samkvæmt sumaráætlun hefur verið frestað. Ástæðan er sögð sú að ferjan sigli enn á einni skrúfu. 2. júní 2026 17:25
Fengu ekki Baldur Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar. 22. maí 2026 11:38
Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu Samgöngur til Vestmannaeyja eru ekki munaður. Þær eru lífæð samfélagsins. Þess vegna olli opinn fundur um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs miklum vonbrigðum hjá okkur Eyjamönnum. Það sem átti að vera fundur um lausnir, framtíðarsýn og ábyrgð varð að stórum hluta upptalning á „náttúruöflum“ og ástæðum fyrir því af hverju hlutirnir séu erfiðir. 18. maí 2026 17:30