Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Agnar Már Másson skrifar 6. júní 2026 22:17 Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, og Tobias Wasmuht, forstjóri SPAR International, klippru saman á borðann. Vísir/Viktor Freyr Fyrstu tvær verslanir SPAR á Íslandi voru opnaðar í dag. Tobias Wasmuht, hollenskur forstjóri alþjóðaverslunarkeðjunnar, klippti á borða við nýja verslun SPAR í Staðarbergi ásamt Auði Daníelsdóttur forstjóra Dranga.
Alþjóðaverslunarkeðjan SPAR International hefur nú formlega numið land en í febrúar undirrituðu Drangar, móðurfélag Samkaupa, samning við verslunarkeðjuna um notkun vörumerkisins hérlendis. Markmið samningsins er að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki SPAR. Eftir innleiðinguna mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Prís, Nettó og nú SPAR. Samkvæmt tölum frá verðlagseftirliti ASÍ er nýmjólkurfernan ódýrari í Bónus, Krónunni, Fjarðakaupum og Nettó – þó aðeins einni krónu muni í síðastnefndu versluninni. Í Bónus munar allt að 36 krónum.Vísir/Viktor Freyr Önnur verslunin sem opnaði í dag er í Staðarbergi í Hafnarfirði en hin er við Barónsstíg í Reykjavík, þar sem áður var verslun Extra. Þessar verslanir bætast því í hóp þeirra 14 þúsund verslana sem hafa opnað í 50 löndum frá því að SPAR var stofnað í Hollandi 1932. Forstjóri SPAR International, Tobias Wasmuht, og Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, opnuðu verslunina í Staðarbergi formlega í dag og klipptu þar á borða. Forstjóri SPAR International, Tobias Wasmuht.Vísir/Viktor Freyr Síðar í júnímánuði verða opnaðar tvær SPAR verslanir í Kópavogi og í sumar verða síðan opnaðar verslanir við Laugalæk í Reykjavík, á Selfossi, í Búðardal og í Neskaupstað. Viktor Freyr ljósmyndari fangaði nokkrur augnablik af opnunarathöfninni en þar greip hann einnig nokkrar myndir af nokkrum verðmerkingum í versluninni. Kaffi- og kexdeildin í verslun SPAR sem opnaði í dag.Vísir/Viktor Nýmjólkurfernan kostar 255 krónur í SPAR og er því 36 krónum dýrari þar en í Bónus, miðað við tölur frá verðlagseftirliti ASÍ. Fernan er jafnvel einni krónu dýrari en í Nettó, en bæði SPAR og Nettó eru rekin af Samkaupum. Þá er hálfslítra flaska af Coca-Cola, sem kostar 229 krónur í SPAR, sömuleiðis 19 krónum dýrari í SPAR heldur en í Krónunni. Hálfslítraflaska með venjulegu Coca-Cola kostar 19 krónum meira í SPAR heldur en í krónunni.Samsett Mynd Þó nafnið SPAR kann væntanlega að vekja hugrenningartengsl við sögnina „að spara“ eru orðin alls óskyld. Verslunarkeðjan hét áður DESPAR sem var skammstöfun fyrir hollenska orðatiltækið „Door Eendrachtig Samenwerken Profiteren Allen Regelmatig“ (ísl. Allir hagnast reglulega á einhuga samvinnu). Nafnið hefur svo verið stílfært sem DE SPAR og svo einfaldlega SPAR. Stefnt er að því að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki SPAR.Vísir/Viktor Freyr
Neytendur Matvöruverslun Verslun Hafnarfjörður Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira