ETS, ESB og EES – Að fá sæti við borðið Dóra Sif Tynes skrifar 8. júní 2026 07:45 Nýverið sendi hópur forstjóra og framámanna í íslensku atvinnulífi hafa stjórnvöldum bréf þar sem kallað er eftir aukinni hagsmunagæslu af hálfu Íslands gagnvart þróun ETS-kerfisins. Þeir vilji að í stað tímabundinna undanþága verði fundin varanleg lausn sem taki mið af legu landsins og fjarlægð frá mörkuðum. Þetta ákall atvinnulífsins um betri aðkomu að mótun löggjafar og ákvarðanatöku á innri markaðnum dregur fram muninn á aðild að EES samningnum annars vegar og fullri aðild að ESB hins vegar. Það felst í EES samningnum að EFTA ríkin sem eiga aðild að honum skuli taka upp löggjöf ESB er varðar innri markaðnum enda er megintilgangur samningsins að skapa einsleitt efnahagssvæði þar sem sömu reglur skuli gilda og sambærileg samkeppnisskilyrði. Samningurinn gerir þannig að ráð fyrir að ESB setji löggjöf sem síðan er tekin upp í EES samninginn. Þá felur samningurinn í sér að EFTA ríkin nái samkomulagi um nauðsynlega aðlögun löggjafar, að þau tali einni röddu, áður en gengið er til samninga við fulltrúa ESB um aðlögunartexta. Oftast nær eru um tæknilegar aðlaganir að ræða, til að mynda þegar mæla þarf fyrir um að Eftirlitsstofnun EFTA sé falið sambærilegt eftirlitshlutverk gagnvart EFTA ríkjunum líkt og Framkvæmdastjórn ESB hefur gagnvart aðildarríkjum sambandsins, en einnig getur verið um að ræða sérreglur sem gilda um aðstæður í einu eða fleiri EFTA ríkjum. Dæmi um þetta er sérlausn er varðar heimildir íslenskra stjórnvalda til að úthluta losunarheimildum með öðrum hætti þegar kemur að flugi. Eðli málsins samkvæmt varða slíkar aðlaganir hins vegar bara þá löggjöf verið er að taka upp í EES samninginn í hvert sinn. EES samningurinn felur hins vegar ekki í sér aðkomu EFTA ríkjanna að mótun löggjafar ESB með formlegum hætti. EFTA ríkin geta sent frá sér álit um löggjöf sem er í mótun hjá ESB. Þar er hins vegar ekki um formlegt samráðsferli að ræða líkt og til dæmis Framkvæmdastjórn ESB ber að eiga við þjóðþing aðildarríkja sambandsins. Aðkoma EFTA ríkjanna kemur því eins og áður segir formlega fyrst til sögunnar þegar löggjöfin hefur verið samþykkt af ESB í samræmi við reglur Sáttmála ESB með aðkomu Framkvæmdastjórnarinnar, Ráðherraráðsins og ESB þingsins. Það er sjálfsagt að hvetja íslensk stjórnvöld til aukinnar hagsmunagæslu gagnvart stofnunum ESB og á það í raun einnig við um atvinnulífið og aðra hagsmunaaðila hér á landi. Vel má vera að aukin hagsmunagæsla að því er varðar þróun ETS kerfisins geti skilað pólítísku samkomulagi um að litið verði til sérstöðu Íslands þegar samið verði um aðlögunartexta við upptöku framtíðar löggjafar á þessu sviði. Það verður hins vegar ekki séð að unnt sé að semja um varanlega lausn líkt og ákall atvinnulífsins hljóðar upp á. Til þess að svo mætti vera þyrfti löggjafi ESB að mæla fyrir um sérreglur fyrir Ísland í kerfi sem verið er að þróa innan sambandsins. ESB væri í raun að setja í sína löggjöf reglur fyrir ríki sem ekki er aðili að sambandinu. Á meðan aðild Íslands að innri markaðinum byggir á EES samningnum er því ekki önnur leið en að freista þess að semja um aðlaganir á löggjöf, hvort sem um er að ræða reglur ETS kerfisins eða aðra löggjöf innri markaðarins, í hvert sinn sem kemur að upptöku hennar í EES samninginn. Aðild að ESB myndi hins vegar tryggja formlega aðkomu Íslands að mótun löggjafar á fyrri stigum og síðan að samþykkt hennar enda ætti Ísland þá fulltrúa í Framkvæmdastjórn ESB, sæti í Ráðherraráðinu og þingmenn á ESB þinginu. Þetta er eitt af þeim atriðum sem nauðsynlegt er að velta fyrir sér þegar kostir og gallar aðildar að ESB eru skoðaðir. Höfundur er lögmaður og sérfræðingur í EES rétti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Sif Tynes Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður ETS-viðskiptakerfið með losunarheimildir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar