Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Artasan 10. júní 2026 07:42 Kristjana Ben tannlæknir fjallar um tannhirðu. Það sem gerist í munninum hefur meiri áhrif á líkamann en við viljum oft trúa. Samkvæmt Kristjönu Ben tannlækni eru sterkar tengingar á milli tannheilsu og almennrar líðan. Hún fer hér yfir það sem skiptir raunverulega máli og hvað við gerum oft rangt án þess að átta okkur á því.
Góð tannheilsa er gríðarlega mikilvæg en slæm tannheilsa hefur ekki einungis áhrif á tennurnar og munnholið heldur einnig andlega og líkamlega heilsu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að sterk tengsl séu á milli slæmrar tannheilsu og slæmrar andlegrar líðan. Rétt tannburstun skiptir miklu meira en við höldum Tannburstun er einföld en gott er að fara reglulega yfir hana. Mikilvægt er að tannbursta vel upp á tannhold, það á til með að gleymast en til að stuðla að heilbrigði tannholds skal beina tannburstanum í 45 gráður í átt að tannholdi til að ná hámarks árangri í hreinsun. GUM batterístannburstinn fjarlægir allt að 50% meira af óhreinindum milli tannanna og hreinsar allt að 47% dýpra undir tannholdið miðað við hefðbundna tannbursta. Tannburstinn sem ég gríp mjög reglulega í er Sonic tannburstinn frá GUM. Hárin á burstanum eru hönnuð þannig að þau fara undir tannholdið og hreinsa því fleti tannarinnar vel. Hreinsunin er betri með Sonic tækninni heldur en í hefðbundnum tannbursta. Mikilvægt er að nota mjúkan tannbursta eins og Sonic tannburstann ef tannhold er farið að þynnast eða ef grunur er um að bursta of harkalega. Flúor enn lykilatriði Með tilkomu samfélagsmiðla kemur reglulega upp umræða og/eða öflugar herferðir fyrirtækja um skaðleg áhrif flúors sem áhorfandinn eða lesandinn grípur. Þá er talað um önnur efni eins og aloe vera sem á að koma í staðinn fyrir flúor. Varast skal að gleypa við þessum ráðfæringum því ekkert efni, enn sem komið er, kemur í staðinn fyrir flúor til að stuðla að uppbyggingu tanna eftir máltíðir dagsins. Flúor er ekki skaðlegt nema í miklu magni ef það er innbyrt, sem er ekki gert við tannburstun. Mikilvægt er að skyrpa en ekki skola eftir að hafa burstað því ef skolað er þá er flúorið skolað í burtu í stað þess að fá að liggja á tönnunum og stuðla að uppbyggingu glerungs. Magn flúors er yfirleitt í einingunni ppm (parts per million). Fyrir fullorðna og krakka sem kunna að skyrpa er ráðlagt magn ekki minna en 1450ppm en fyrir yngri börn er ráðlagt magn 1000ppm. Magnið af tannkreminu sem þarf á burstann er oft minna en fólk heldur. Á GUM barnatannburstunum er annar litur í miðju tannbursta haussins sem bendir til magnsins sem er ráðlagt fyrir barnið, gott getur verið að fylgja því ef það er óvissa um magnið. Fyrir yngstu börnin er gott að miða við ¼ af nögl á litla fingri barnsins. GUM býður upp á fjölbreytt úrval af tannvörum fyrir yngri kynslóðina. Tannburstinn nær ekki öllu Tannburstun ein og sér dugir þó ekki til að hreinsa tennurnar. Tannburstinn nær einungis að hreinsa 60% af yfirborði tanna og því er mikilvægt að klára þessi 40% með tannþræðinum. Tannstönglarnir, tannþræðirnir og millitannaburstanir eru fullkomnir á ferðinni til þess að passa upp á að halda brosinu hreinu og fínu, hvar og hvenær sem er. Mín reynsla hefur sýnt mér að það henti flestum að nota tannþráð á priki. Easy flosser frá GUM er þægilegur í notkun og hreinsar vel á milli tannanna. Börn eru ekki undanskilin tannþráðsnotkun en ég fæ reglulega spurningu hvenær eigi að byrja að nota tannþráð hjá börnum. Um leið og tennur byrja að snertast er gott að byrja að nota tannþráð. Ég hef ráðlagt mínum skjólstæðingum að leyfa börnunum að prófa sjálf tannþráðinn til að venjast, foreldrar geta klárað á þeim svæðum sem erfiðari eru fyrir börnin eins og t.d. jaxlasvæði. Það sem ég gríp alltaf í á ferðinni Sú vara sem ég hef langoftast með mér þegar ég er á ferðinni er Soft Picks frá GUM en það eru mjúkir millitannaburstar. Millitannaburstar eru góðir til að grípa í eftir máltíðir því þeir komast auðveldlega á milli tannanna, upp við tannholdið og hreinsa því matinn vel í burtu og þannig koma í veg fyrir bólgur í tannholdi og matarsöfnun. GUM Soft Picks PRO ná vel á milli tannanna og inn undir tannholdið á þá staði sem tannburstinn nær ekki til. Tannstöngull sem tannlæknar mæla með. Reglulegt eftirlit borgar sig Mín áminning til allra er að fara reglulega til tannlæknis til þess að hreinsa tannstein í burtu og skoða ástand tannanna því með reglulegri og góðri tannhirðu, hollu mataræði og árlegu eftirliti má fyrirbyggja marga algenga tannsjúkdóma. Gum vörurnar fást í helstu apótekum og stórmörkuðum og ennfremur á vefversluninni velvera.is.
Heilsa Tannheilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira