Segir styttast í fyrsta sigurinn Andri Broddason skrifar 10. júní 2026 08:31 Lewis Hamilton segir að það styttist í fyrsta sigur hans hjá Ferrari Quinn Rooney/Getty Images Lewis Hamilton finnur að fyrsti sigur hans með Ferrari er að nálgast. Sjöfaldi heimsmeistarinn er kominn í annað sæti í heimsmeistaramóti ökuþóra í Formúlu 1 eftir góða frammistöðu í síðustu keppnum.
Lewis Hamilton gekk til liðs við Ferrari á síðasta ári en gengið hjá liðinu var ekki gott fyrsta árið. Í ár er staðan öðruvísi og eftir að hafa verið á verðlaunapalli í fyrsta skiptið með Ferrari í Kína hefur hann náð góðum stigum og situr nú í öðru sæti heimsmeistaramótsins. Ungstirnið Kimi Antonelli er í fyrsta sæti heimsmeistaramótsins en hann fékk sætið hans Hamilton þegar hann fór til Ferrari. Hamilton finnst ótrúlegt að hann sé sem stendur í öðru sæti heimsmeistaramótsins. Þrátt fyrir að Hamilton sé 66 stigum á eftir Antonelli ætlar hann að reyna eins og hann getur að sækja áttunda heimsmeistaratitilinn sinn. Síðasta keppnin í Formúlu 1 var í Mónakó og endaði með áhugaverðum verðlaunapalli. Hamilton er eldri en báðir hinir ökumennirnir samanlagt. Hamilton er 41 árs á meðan Kimi Antonelli er 19 ára og Isack Hadjar sem var með þeim á verðlaunapalli er 21 árs. Aldur Antonelli og Hadjar er því samtals 40. Eftir keppnina sagðist Hamilton vera stoltur af því að deila verðlaunapalli með ungu ökuþórunum og geta haldið í við þá. Liðsfélagi Hamilton hjá Ferrari, Charles Leclerc, hefur ekki átt jafn góðu gengi að fagna í ár. Hann er sem stendur í fjórða sæti heimsmeistaramótsins en hefur ekki fundið sig jafn vel í Ferrari bílnum í ár og Hamilton. Þrátt fyrir það var hann að skrifa undir langan samning við Ferrari liðið sem gefur í skyn að hann treysti vegferð liðsins.
Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Eiginkona og tvö börn fótboltamanns létust Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Fótbolti Kane bjargaði enskum Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Fyrsti sigur Russell frá því í fyrstu keppni tímabilsins Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Allt í bál og brand í Formúlu 1 Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Sjá meira