Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. júní 2026 22:30 Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Vísir/Arnar Framkvæmdastjóri Bónuss segist ekki geta fækkað starfsfólki þrátt fyrir tilkomu sjálfsafgreiðslukassa og þar af leiðandi lækki ekki vöruverð vegna þess. Nú þegar sé álagning á vörurnar svo lág að ef vöruverð yrði lækkað um þrjú prósent væri félagið nærri gjaldþroti. „
Ætli þetta sé ekki svona ein algengasta spurningin sem maður fær hjá fólki úti í bæ þegar maður er á einhverju spjalli. Um daginn fékk ég nákvæmlega þessa spurningu og ég ákvað að spyrja til baka hverjar væru væntingarnar hjá einstaklingnum og bara svona til að reyna að fatta hvað myndi fólk vilja fá mikla lækkun,“ segir Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss, í Reykjavík síðdegis. Til umræðu var tilkoma sjálfsafgreiðslukassa og hvort slík tækni skili sér til neytenda með lægra vöruverði. Björgvin segir að umræddur einstaklingur hefði vilja um þriggja prósenta lækkun á vöruverði vegna tilkomu sjálfsafgreiðslukassanna. „Það sem er svolítið skemmtilegt í því er að ef við förum í þriggja prósenta lækkun í Bónus væri félagið farið nánast á hausinn á ansi stuttum tíma af því að það er svo lítið sem við skiljum eftir. En ég held að fólk fatti ekki hvað álagningin er í rauninni lág og hvað er verið að berjast fyrir miklu hjá okkur.“ Kemur í veg fyrir fjölgun starfsmanna Launakostnaður fyrirtækisins lækki ekki þrátt fyrir að ekki þurfi að manna afgreiðslukassana á sama hátt. Þess í stað fari starfsmennirnir á sjálfsafgreiðslukassasvæðið sem þurfi stöðugt að vakta. „Við þetta er vissulega verið að fjárfesta líka í tækninýjungum, viðhaldi og allri þeirri þróun sem fylgir,” segir Björgvin. Þjófnaður hefur einnig aukist með tilkomu sjálfsafgreiðslukerfisins. „Það hefur tekist vel að halda því niðri, þannig að í rauninni það sem við erum að gera með sjálfsafgreiðsluna er bara að bæta þjónustu fyrir viðskiptavini og í rauninni koma í veg fyrir það að þurfa að bæta við fleiri starfsmönnum þegar kemur að aukinni sölu, því við erum að sjá aukna veltu í gegnum verslanir okkar.“ Forsvarsmenn Bónuss horfi á tæknina sem bætingu á þjónustu sem stytti raðir í stað einhvers sem lækki vöruverðið. „Við erum vissulega að reyna að koma upp fleiri sjálfsafgreiðslukössum þar sem við getum til þess að anna eftirspurninni frekar en eitthvað annað.“
Verslun Matur Matvöruverslun Neytendur Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira