Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2026 17:02 Öll augu íslenskra golfáhugamanna verða á Gunnlaugi Árna Sveinssyni í kvöld þegar hann hefur leik á U.S. Open risamótinu í golfi. Getty/Tanner Pearson Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur í dag leik á U.S. Open, sem fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York, en hann verður þá fyrsti íslenski karlinn til að taka þátt í þessu risamóti.
Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi U.S. Open hófst klukkan fjögur í dag á Sýn Sport. Veðrið er strax farið að setja strik í reikninginn á U.S. Open en mótið fór af stað í morgun en hafði ekki staðið lengi yfir þegar leik var frestað vegna þoku. Frestunin stóð yfir í um tvær klukkustundir. Það þýðir að rástími Gunnlaugs Árna verður ekki klukkan 18.20 eins og áður var gefið út heldur er rástími Gunnlaugs nú settur klukkan 20:20 samkvæmt ESPN. Gunnlaugur er í ráshóp með Taihei Sato frá Japan og Marcelo Rozo frá Kólumbíu. Síðasti ráshópur fer út klukkan 20.45 en það er nokkuð víst að þessir síðustu ráshópar munu ekki ná að klára hringinn fyrir myrkur. Það er því líklegt að þeir þurfi því að klára fyrsta hringinn sinn eldsnemma í fyrramálið að bandarískum tíma. Þar sem Gunnlaugur Árni fer svo seint af stað gæti það orðið hlutskipti hans að spila fyrsta hringinn sinn á tveimur dögum og spila síðan fleiri en átján holur á morgun þar sem annar hringurinn verður spilaður. Þeir hefja leik á fyrsta hring en einhverjir af kylfingunum þurfa að byrja á tíundu holu.
Opna bandaríska Golf Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira