Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Aron Guðmundsson skrifar 19. júní 2026 00:41 Gunnlaugur á Shinnecock Hills vellinum í kvöld ásamt kylfusveini sínum og vini, Bjarka Péturssyni Vísir/Getty Gunnlaugur Árni Sveinsson fékk ekki, líkt og nokkrir aðrir kylfingar, að ljúka fyrsta hring sínum á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld. Myrkur skall á og munu kylfingar sem ekki gátu klárað sinn fyrsta hring þurfa að ljúka honum fyrir annan hring á morgun. Gunnlaugur lauk deginum á frábærum fugli á annars krefjandi degi og er á níu höggum yfir pari. Þessi tvítugi Íslendingur opnaði nýjan kafla í íslenskri golfsögu í kvöld með því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn til að spila á U.S. Open risamótinu í karlaflokki. Mikil reynsla fyrir strákinn unga. Segja má að þessi fyrsti hringur hafi reynt ansi mikið á Gunnlaug sem að gekk illa með teighöggin sín. Hann byrjaði hringinn á pari og fékk tvo skolla á fyrstu fjórum holunum en lenti svo einni í töluverðu brasi á sjöttu holu, fór hana á átta höggum. Fjórum höggum yfir pari. Skollarnir urðu alls tveir til viðbótar og var á brattann að sækja fyrir Gunnlaug sem sýndi þó styrk, lét deigan ekki síga og náði í lok dags, á fjórtándu holu, að sækja sinn fyrsta fugl og þar með fyrsta fugl Íslendings á þessu risamóti. Gunnlaugur náði að leika fjórtán af átján holum vallarins á fyrsta hringnum og mun þurfa að leika þær fjórar holur sem eftir standa á morgun áður en hann heldur út í sinn annan hring. Alls endaði Gunnlaugur daginn á níu höggum yfir pari. Það er rými fyrir bætingu hjá kappanum og hann mun bara eflast við þetta. Góð reynsla í bankann og spennandi að sjá hvað kylfingurinn ungi gerir á morgun. Sýnt verður beint frá öðrum keppnisdegi U.S. Open á Sýn Sport á morgun. Útsendingin hefst fyrr en vanalega, eða klukkan hálf eitt í hádeginu.
Þessi tvítugi Íslendingur opnaði nýjan kafla í íslenskri golfsögu í kvöld með því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn til að spila á U.S. Open risamótinu í karlaflokki. Mikil reynsla fyrir strákinn unga. Segja má að þessi fyrsti hringur hafi reynt ansi mikið á Gunnlaug sem að gekk illa með teighöggin sín. Hann byrjaði hringinn á pari og fékk tvo skolla á fyrstu fjórum holunum en lenti svo einni í töluverðu brasi á sjöttu holu, fór hana á átta höggum. Fjórum höggum yfir pari. Skollarnir urðu alls tveir til viðbótar og var á brattann að sækja fyrir Gunnlaug sem sýndi þó styrk, lét deigan ekki síga og náði í lok dags, á fjórtándu holu, að sækja sinn fyrsta fugl og þar með fyrsta fugl Íslendings á þessu risamóti. Gunnlaugur náði að leika fjórtán af átján holum vallarins á fyrsta hringnum og mun þurfa að leika þær fjórar holur sem eftir standa á morgun áður en hann heldur út í sinn annan hring. Alls endaði Gunnlaugur daginn á níu höggum yfir pari. Það er rými fyrir bætingu hjá kappanum og hann mun bara eflast við þetta. Góð reynsla í bankann og spennandi að sjá hvað kylfingurinn ungi gerir á morgun. Sýnt verður beint frá öðrum keppnisdegi U.S. Open á Sýn Sport á morgun. Útsendingin hefst fyrr en vanalega, eða klukkan hálf eitt í hádeginu.
Golf Opna bandaríska Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Fleiri fréttir Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Sjá meira