Innlent

Leitar eftir stuðningi al­mennings vegna ein­staks dóms­máls

Jakob Bjarnar skrifar
Alex Da Rocha. Hann leitar nú til almennings en hann þarf að greiða lögfræði- og sérfræðikostnað eftir afar sérstakt dómsmál.
Alex Da Rocha. Hann leitar nú til almennings en hann þarf að greiða lögfræði- og sérfræðikostnað eftir afar sérstakt dómsmál. facebook

Alex Da Rocha hefur óskað eftir stuðningi almennings vegna sérstæðs dómsmáls. Tíu ára barn hans fór í transmeðferð án þess að Alex hefði þar nokkra aðkomu. Landsréttur hefur nú úrskurðað að stöðva beri meðferðina.

Alex er af frönsku bergi brotinn og sagði af máli sínu í þætti hlaðvarpsins Bjórkastið. Hann átti í forræðisdeilu við íslenska barnsmóður sína sem sendi barn þeirra í transmeðferð á Landspítalanum.

Alex kom til Íslands fyrir 25 árum. Hann stundaði sjómennsku og flutti sig svo yfir í ferðamennskuna. Svo söðlaði hann um og starfaði á veitingastöðum og hótelum. Hann varð faðir fyrir rúmum tíu árum og segir að skilnaðurinn hafi verið erfiðari en hann var þegar barnið var fimm ára gamalt.

Alex segir að hlutirnir hafi orðið torkennilegir eftir sjö ára aldur barn síns. Barnið hafi haft gaman af því að klæðast búningum og vildi vera í prinsessubúningi. Svo fékk hann tölvupóst frá barnsmóður sinni þar sem sagði að hann vildi koma úr skápnum. Alex segist ekki hafa látið þetta trufla sig neitt enda hafi hann ekkert á móti samkynhneigðum.

Í Facebook-færslu segir hann að tíu ára gamall barn hans hafi verið sendt í transmeðferð á Landspítalanum. Hann hafði ekkert um það að segja. Alex fór með málið í dóm og Landsréttur hafi nú úrskurðað að stöðva beri meðferðina. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar á Íslandi, segir í Facebook-færslu Alex, málið var útkjáð við lokuð réttarhöld og hann sé eina foreldrið sem er að berjast og borga.

Alex nefnir í færslu sinni að hann skorti tvær milljónir króna vegna lögfræðikostnaðar og sérfræðiráðgjafar og hann hvetur fólk til að styðja sig og barn sitt vegna þessarar baráttu sinnar sem sé einstök í íslenskri réttarfarssögu.

Athugasemd 16:55

Eftir því sem Vísir kemst næst hefur Landsréttur ekki úrskurðað í málinu, rétturinn hefur kallað eftir viðbótarmati frá sálfræðingi við forsjármálið. Málið er nú í bið og verður líklega ekki tekið fyrir fyrr en í vetur komandi.  Héraðsdómsmálið, sem snerist um forsjá, í því var dæmt í byrjun desember á síðasta ári. Þar tapaði Alex forsjá en áfrýjaði svo málinu til Landsréttar. Mjög strangar reglur gilda um transteymi LSH, Bugl, og þar byrjar enginn í meðferð fyrr en kynþroski er hafinn. Tíu ára transbörn fara ekki almennt á lyf, heldur í sálfræðimeðferð, þau komast ekki inn í teymið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×