Neytendur

Kaup­máttur heldur á­fram að aukast

Bjarki Sigurðsson skrifar
Kaupmáttur hefur aukist jafnt og þétt síðan í byrjun árs 2023.
Kaupmáttur hefur aukist jafnt og þétt síðan í byrjun árs 2023. Vísir/Vilhelm

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 1,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ráðstöfunartekjur jukust um 6,4 prósent milli ára og vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent. 

Í greiningu Hagstofunnar segir að heildartekjur heimilanna hafi aukist um 6,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins. Launatekjur jukust um 6,6 prósent, eignatekjur um fimm prósent og vaxtatekjur um 3,4 prósent. 

Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 10,1 prósent. Aukninguna má að mestu rekja til hækkana á bótum almannatrygginga og lífeyrisgreiðslum, sem hækkuðu um 16,5 prósent annars vegar og 10,2 prósent hins vegar.

Ráðstöfunartekjur heimilanna námu að meðaltali 645 þúsund krónum samkvæmt gögnum Hagstofunnar en á sama tíma í fyrra voru þær 599 þúsund krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×