Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 12:30 Hólmfríður Magnúsdóttir með Kolfinna Rán, dóttir Olgu Færseth og Pálínu Guðrúnu Bragadóttur, sem hefur háð langa og erfiða baráttu við krabbamein. @holmfridur84 Íslenska landsliðsgoðsögnin Hólmfríður Magnúsdóttir stóð fyrir söfnun fyrir dóttur fyrrum liðsfélaga sinna og hefur nú sagt frá uppskerunni.
Kolfinna Rán, dóttir Olgu Færseth og Pálínu Guðrúnar Bragadóttur, hefur háð langa og erfiða baráttu við krabbamein. Hólmfríður Magnúsdóttir spilaði með þeim báðum í bæði KR og ÍBV sem og með Olgu í íslenska landsliðinu. Olga er markahæsti leikmaður efstu deildar kvenna frá upphafi og Hólmfríður er í tólfta sæti en hún spilaði lengi í atvinnumennsku erlendis. Kolfinna er nú þrettán ára gömul og greindist fyrst með krabbamein þegar hún var aðeins tveggja og hálfs árs gömul. Þá gekk hún í gegnum sex mánaða lyfjameðferð og yfir þrjátíu geislameðferðir, þar sem hún þurfti að vera svæfð í hvert skipti. Hún sigraði það. View this post on Instagram A post shared by Holmfridur Magnusdottir (@holmfridur84) Í lok júlí á síðasta ári greindist Kolfinna aftur. Í ágúst hóf hún átta lyfjagjafir, flaug síðan til Svíþjóðar í desember og gekkst undir mikla aðgerð þar sem stór hluti af lærleggnum upp í mjaðmakúlu var fjarlægður og íhlutur settur í staðinn. Að auki þurfti að fjarlægja tvo af stóru vöðvunum í lærinu. Eftir aðgerðina hefur hún klárað tíu lyfjameðferðir. „Ný óvissa tók svo við og í vikunni gekkst hún undir aðgerð þar sem fjarlægður var blettur úr lunganu og sepi þar við hlið. Kolfinna hefur sýnt ótrúlegan styrk og lætur ekkert stöðva sig. Hún er mín uppáhaldsstelpa — skapið, krafturinn og baráttan í henni eru ólýsanleg. Mig langar að safna í framtíðarsjóð fyrir Kolfinnu með styrktarlottói sem hefst í næstu viku. Því langar mig að athuga hvort fleiri styrktaraðilar, fyrirtæki eða íþróttafólk vilji sýna Kolfinnu stuðning með því að gefa vinning,“ skrifaði Hólmfríður við upphaf söfnunarinnar. Nú er ljóst að söfnunin gekk vel. „Þegar ég hóf þessa söfnun var markmiðið einfalt – að safna sem stærstum hópi fólks saman til að styðja Kolfinnu og fjölskyldu hennar. Á síðustu vikum hef ég fengið að upplifa einstaka samstöðu, hlýju og stuðning sem hefur snert mig djúpt,“ skrifar Hólmfríður og segir að lokaupphæðin sem safnaðist hafi verið 8.005.362 krónur en öll upphæðin verður lögð inn á Kolfinnu. Hólmfríður þakkar öllum fyrir sem lögðu hönd á plóg. „Þessi söfnun sýnir hvað getur gerst þegar fólk sameinast um góðan málstað. Fyrir það er ég óendanlega þakklát. Takk fyrir stuðninginn, kærleikann og samstöðuna. Takk, íslenska þjóð,“ skrifar Hólmfríður og birtir líka myndir af þeim saman eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Holmfridur Magnusdottir (@holmfridur84)
Besta deild kvenna KR ÍBV Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira