„Ég miða alltaf í fjærhornið svo ég fann það strax“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 28. júní 2026 20:11 Alpha Conteh skoraði sigurmarkið í dag fyrir Keflavík. knattspyrnudeild keflavíkur Keflavík vann gríðarlega mikilvægan og góðan 3-2 sigur á KR í Bestu deild karla í kvöld. Sigurmarkið kom undir lok leiks og var það Alpha Conteh sem skoraði það með frábæru skoti. „
Þetta var erfiður leikur fyrir okkur en okkur tókst að hafa betur“ sagði Alpha Conteh en hann skoraði sigurmark Keflavíkur í kvöld. „Þetta var mjög mikilvægur leikur fyrir okkur og ég er mjög ánægður með að við höfum tekið öll stigin þrjú“ Alpha Conteh var ánægður með liðið sitt og finnst Keflavík spila skemmtilegan og góðan fótbolta. „Þetta er mjög gott lið og spilar mjög skemmtilegan fótbolta. Mér finnst við sýna það líka gegn flestum liðum að við erum með hörku lið“ Alpha Conteh skoraði sigurmarkið í dag og var það frábært mark. Hann trúði því allan tímann að sigurmarkið gæti komið. „Ég trúði því allan tímann. Ég átti nokkur góð skot í leiknum og ég fann það að ég þyrfti að reyna aftur og undir lokin þá fór hann inn“ Hann fann það um leið og hann sparkaði í boltann að boltinn væri á leið í fjærhornið. „Já ég fann það. Ég miða alltaf í fjærhornið svo ég fann það strax að hann væri að fara enda þar“ Þetta reyndist sigurmark leiksins en það kom á 90. Mínútu og átti Alpha Conteh erfitt með að koma því í orð hvernig tilfinningin var að horfa á eftir boltanum í netið. „Þetta var frábær tilfinning. Ég get ekki einu sinni komið því í orð en að skora sigurmark á 90. mínútu fyrir liðið þitt í svona mikilvægum leik er stórkostleg tilfinning“ Þessi sigur gefur Keflavík heilmikið fyrir framhaldið. „Mér finnst eins og þessi sigur gefur okkur mikið. Við fáum von og byggjum upp sjálfstraust fyrir komandi leiki. Þetta gefur okkur mikið andlega fyrir komandi verkefni og trú á því að við getum unnið næstu leiki“ sagði Alpha Conteh.
Keflavík ÍF Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Afmælisdagurinn sem aldrei kom Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA Þessir eru tilnefndir sem bestu fótboltamenn heims „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Pablo Escobar útlitið er heitt hjá Betis Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Ruglaðist á mótherja og komst að því í miðju viðtali Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ætlar að taka sér pásu út tímabilið Sjá meira