Ætla ekki að heiðra O.J. Simpson á nýja leikvanginum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 12:31 O.J. Simpson sést hér árið 1980 með foreldrum sínum þegar hann var sá fyrsti sem Buffalo Bill heiðraði með því að setja upp heiðursvegginn á leikvanginum. Getty/Ross Lewis O.J. Simpson verður ekki heiðraður meðal annarra goðsagna Buffalo Bills á nýja Highmark-leikvangi Buffalo Bills-liðsins. „
Við höfum tekið þá ákvörðun innan félagsins að hann eigi ekki heima á nýja leikvanginum okkar og í fjölskylduhringnum,“ sagði Pete Guelli, forseti viðskiptasviðs Bills, í yfirlýsingu. Bills mun heiðra goðsagnir á fjölskylduhringssvæði liðsins fyrir utan nýja leikvanginn, svæði sem mun sýna sögu liðsins og Vestur-New York. Aðrir sem voru á heiðursvegg liðsins verða heiðraðir á svæðinu og er Simpson líklega sá eini sem verður það ekki. Þetta verður svæði sem Bills hvetur til samkomuhalds árið um kring og þar verða þrjár vísundastyttur liðsins. Buffalo Bills Will Not Honor O.J. Simpson at New Stadium: ‘Not a Fit to Display’ https://t.co/P4xTnt6Z0L— People (@people) June 28, 2026 Svo nýlega sem í vor hafði Bills verið að íhuga hvort Simpson yrði með á svæðinu og hönnunarteymið var að undirbúa sig fyrir báða möguleika. Nafn Simpsons var sýnilegt á gamla leikvangi Bills sem hluti af heiðursveggnum sem var settur á laggirnar árið 1980. Hann var fyrsti meðlimurinn sem var tekinn inn. Nafnið hékk uppi í mörg ár þrátt fyrir opinberar umræður. Simpson var grunaður um hnífstungumorðin á Nicole Brown Simpson og Ronald Goldman árið 1994. Hann var á endanum ákærður og réttarhöldin yfir honum árið 1995 vöktu heimsathygli. Simpson var sýknaður af öllum ákærum en dæmdur bótaskyldur fyrir manndráp af gáleysi í einkamáli tveimur árum síðar. Honum var gert að greiða 33,5 milljónir dala í skaðabætur til fjölskyldna Brown og Goldman. Simpson hélt fram sakleysi sínu. O.J. Simpson, who was the first Buffalo Bill to be inducted into the team's Wall of Fame, will not be in the new Highmark Stadium, per @news4buffalo. pic.twitter.com/LNryfccJRb— Yahoo Sports (@YahooSports) June 27, 2026 Bills valdi Simpson með fyrsta valrétti í nýliðavali NFL árið 1969 og hann lék níu tímabil (1969–77) með félaginu. Hann varð fyrsti hlauparinn í sögu NFL til að ná tvö þúsund hlaupajördum á einu tímabili, þegar hann hljóp 2.003 jarda árið 1973, og var fimm sinnum valinn í úrvalslið deildarinnar. Simpson lést úr krabbameini í apríl 2024. Hann var 76 ára. Þegar hann lést tók Bills skref í átt að því að fjarlægja sig frá honum með því að gefa ekki út yfirlýsingu eða minnast andláts hans. View this post on Instagram A post shared by Buffalo Bills (@buffalobills)
NFL Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag Sjá meira