Golf

Víkingaróður Norð­manna kominn inn í golfið líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Hovland fagnaði sigri sínum á mótinu með því að taka Víkingaróðurinn með löndum sínum sem fjölmenntu til að hvetja hann áfram á Travelers-golfmótinu.
Viktor Hovland fagnaði sigri sínum á mótinu með því að taka Víkingaróðurinn með löndum sínum sem fjölmenntu til að hvetja hann áfram á Travelers-golfmótinu. Getty/Andrew Redington

Norski kylfingurinn Viktor Hovland tryggði sér sigur á Travelers Championship-golfmótinu á PGA-mótaröðinni eftir umspil á móti Bandaríkjamanninum Scottie Scheffler. Norskir fótboltaáhugamenn létu sig ekki vanta og studdu landa sinn.

Hovland og Scheffler þurftu að gera út um sigurinn á mánudaginn þar sem síðasta umferðin kláraðist seint vegna óveðurs og í umspilinu virtist sem báðir leikmenn hefðu sofið vel um nóttina.

Bæði Hovland og Scheffler, sem er efstur á heimslistanum, spiluðu sig upp á flötina eftir tvö nánast fullkomin högg á 18. holu og báðir áttu góða möguleika á að byrja með fugli.

Hinn 28 ára gamli Hovland var lengra frá og átti því að pútta fyrst úr um tveggja metra færi. Þegar kylfingarnir voru á leið upp að flötinni heyrðust áhorfendur kalla: „Heimavöllur“.

Það var engin tilviljun því að norskir stuðningsmenn voru furðu vel sýnilegir á móti helgarinnar. Klæddir í treyjur fótboltalandsliðsins hafa margir náð að smeygja golfmóti inn á milli leikja. Og kannski var það stuðningurinn frá Norðmönnunum sem reyndist úrslitaatriði.

Hovland setti niður púttið sitt úr um tveggja metra færi, en Bandaríkjamanninum Scheffler tókst ekki að fylgja því eftir. Úr um meters færi smaug boltinn fram hjá holubarminum vinstra megin.

Þar með var ljóst að Hovland tryggði sér áttunda PGA-titilinn eftir umspil sem var lokið á innan við korteri.

Hovland hefur átt erfitt tímabil hingað til. Þetta var fyrsti sigur Norðmannsins á PGA-mótaröðinni síðan í mars í fyrra. „Það var ánægjulegt að sigra í umspili gegn Scottie – besta leikmanni heims,“ sagði Hovland.

„Þetta hefur verið stressandi, en þetta er ótrúlegt. Sérstaklega eftir að Scottie var svona nálægt. Ég þurfti að vera upp á mitt besta og hann kallaði það fram úr mér, ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ sagði Hovland í sigurviðtalinu.

Eftir að sigurinn var í höfn náðu sjónvarpsmyndavélarnar mynd af móður Hovlands, Galinu Hovland, meðal áhorfenda. Þetta var í fyrsta skipti sem hún sá son sinn vinna á PGA-mótaröðinni.

„Pabbi hefur ekki séð mig vinna, en nú hefur mamma að minnsta kosti gert það. Ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ sagði Norðmaðurinn með breitt bros.

Norðmennirnir komu líka með „Víkingaróðurinn“ sem hefur farið sem eldur í sinu um leikvangana á HM auk þess að sjást á neðanjarðarlestarstöðvum og í verslunarmiðstöðvum eða hvert sem þeir fara.

Hovland hafði aldrei séð þetta með eigin augum fyrr en á laugardaginn. Þegar því var lokið settist hann niður með fólkinu sínu og þau sýndu honum hvernig þetta er gert.

„Maður fær klárlega adrenalínkikk út úr þessu,“ sagði Hovland. Víkingaróður Norðmanna er því kominn inn í golfið líka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×