Vegum lokað og bílar taldir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. júní 2026 21:06 Búast má við töluverðum fjölda fólks á Látrabjargi þann 12. ágúst. KMU Töluvert af öryggisráðstöfunum verða gerðar á Vestfjörðum vegna almyrkvans þann 12. ágúst næstkomandi. Til að mynda verður veginum um Bolafjall lokað og fari of margir í átt að Látrabjargi verður veginum lokað. „
Við höfum verið að meta stöðuna með fjölmörgum aðilum og átt marga fundi. Við erum að reyna að átta okkur á því hvar þolmörkin okkar eru hérna á Vestfjörðum,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, í Reykjavík síðdegis. Nokkrir mánuðir eru síðan að allt gistipláss á Vestfjörðum seldist upp og er búist við að mikill fjöldi leggi leið sína til Vestfjarða til að sjá almyrkvann. Hann á að sjást best á vestanverðu landinu. „Látrabjargið er þannig að maður þarf að keyra á malarvegi og sums staðar er hann mjór og sums staðar er hann hátt yfir sjó, 45 kílómetra frá botni Patreksfjarðar og út á Látrabjargið. Þannig að þetta eru svona ýmsar áskoranir á leiðinni, sama með Bolafjallið, það er malarvegur þarna upp og þetta er náttúrulega bratt og hátt fjall,“ segir Hlynur. Bæjaryfirvöld í Bolungarvík hafa þegar ákveðið að loka fyrir umferð um Bolafjall og bjóða þess í stað upp á sætaferðir upp fjallið. Úr sex í sextán Búist er við flestum gestum á sunnanverðum Vestfjörðum á Látrabjargi þar sem almyrkvinn mun sjást hvað best. Hins vegar er ekki mikil þjónusta í boði á veginum sem liggur þangað. „Við höfum skilgreint fjögur bílastæði sem eru þá með salerni og fólk getur þá lagt á þessum vegkafla hérna og við ætlum að stýra umferðinni þannig að þegar bílar eru komnir upp í ákveðinn fjölda ætlum við að loka veginum,“ segir Hlynur. „Við höfum nú áætlað að það verði svona tíu til ellefu þúsund bílar sem komast fyrir á þessum fjórum skilgreindu bílastæðum.“ Stórum rútum verður ekki heimilt að aka um veginn til að lágmarka slysahættu. Auk þess sem ráðist hefur verið í öryggisráðstafanir hefur lögreglan fengið aukinn mannafla. „Það koma mjög margir að þessu og allir mjög viljugir að taka þátt í þeim tilgangi að minnka álagið og vera með gott viðbragð ef eitthvað fer úrskeiðis,“ segir Hlynur. Alla jafna séu sex lögreglumenn að störfum á hverjum degi á öllum Vestfjörðum en þeim verður fjölgað í sextán. Þá er búið að ráða hjúkrunarfræðinga og lækna á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Lögreglan Reykjavík síðdegis Lögreglumál Vesturbyggð Látrabjarg Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira