Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar 1. júlí 2026 06:00 Ég viðurkenni að það olli mér talsverðri undrun að sjá atvinnuvegaráðherra inntan álits um myndband sem birtist á Vísi þar sem sjá má starfsmenn Hvals fíflast í vinnunni. Enn fremur fannst mér dapurt að sjá svar ráðherrans, en það var á þá vegu að spilun þjóðsöngsins væri “auðvitað óviðeigandi” í vinnunni, að “heilt yfir virðist þetta vera komið út í tóma vitleysu” og að um “fíflaskap” væri að ræða. Ásakar ráðherra starfsfólkið um að haga sér ekki “eins og fullorðið fólk”. Enn fremur fannst ráðherranum tilefni til að “fullyrða” að hegðunin hefði ekki verið viðhöfð með orðspor Íslands á erlendri grundu í huga né “viðskiptahagsmuni Íslands á alþjóðagrundu”, en með því gefur ráðherra í skyn að starfsfólk þessa einkafyrirtækis bæri á einhvern hátt skylda til þess að haga sér í vinnunni með hagsmuni og orðspor Íslands að leiðarljósi. Ítrekaði ráðherra að um virðingarleysi væri að ræða — gagnvart hvalnum sjálfum, gagnvart ferðaþjónustunni og jafnvel gagnvart því hvernig Íslendingar nýta sjávarauðlindina. Hvað dýrið varðar er það ekki nýtt að veiðimenn gantist með hræ hins veidda dýrs. Fiskveiðimenn halda brosandi á fiskinum og skotveiðimenn halda á fuglinum og stilla sér upp við hlið kattarins og bjarnarins. Í þessu samhengi er vert að nefna gálgahúmor heilbrigðisstarfsfólks, en það er vel þekkt hvernig það talar um sjúklinga sína í einrúmi. Slíkt eru eðlileg og heilbrigð viðbrögð við streitunni sem starfinu fylgir. Sex sekúndna myndskeið af stökum starfsmanni að fíflast með lík hvalsins réttlætir ekki alhæfingu og harðan dóm ráðherra. Hvað ferðaþjónustuna varðar má nefna tvennt. Annars vegar er það auðvitað sú einfalda staðreynd að það er ekki hvalvinnslumannsins að hafa áhyggjur af ferðaþjónustunni á sama hátt og það er ekki sálfræðingsins að hafa áhyggjur af verkfræðingnum — starfsmaðurinn hefur áhyggjur af eigin starfi. Þetta er starfsfólk að sinna tilteknu starfi fyrir tiltekið einkarekið fyrirtæki á frjálsum markaði. Hins vegar er það röksemdafærsla ráðherrans, en hún er veik. Ráðherra segir að gagnrýnisraddir hafi borist frá löndum hvaðan stór hluti ferðamanna til Íslands koma og ályktar út frá því að þessi hegðun starfsmannsins gæti haft neikvæð áhrif á ferðaþjónustuna. Þetta er auðvitað einstaklega ósannfærandi röksemdafærsla. Hvað varðar meint virðingarleysi við nýtingu sjávarauðlindarinnar er nóg að benda á að sjálfbær veiði — sem ráðherrann hyggst beita sér gegn í formi lögbanns á hvalveiðar — er einmitt kjarni góðrar nýtingar hennar. Allt er þetta alvarlegur misbrestur af hálfu ráðherrans. Það er nefnilega svo að á Íslandi ríkir atvinnu- og einstaklingsfrelsi. Það kemur því hvorki atvinnuvegaráðherra né öðrum ráðherra, embættismanni eða almennum starfsmanni hins opinbera við hvernig starfsmenn einkarekins fyrirtækis á frjálsum markaði haga sér í vinnunni svo lengi sem engin lög eru brotin. Eðlilegt svar frjálslynds stjórnmálamanns við þessari spurningu blaðamannsins væri því eitthvað á borð við: Það er ekki mitt sem ráðherra að hafa álit á hegðun fólks í vinnu annars staðar en hér í mínu ráðuneyti. Að því sögðu hefði hún getað lýst sinni persónulegu skoðun svo lengi sem hún hefði ítrekað að hún hafi ekkert tilkall til að skipta sér af hegðuninni sem um ræðir eða atferli þessa starfsfólks almennt: Mér finnst þetta persónulega óforsvaranleg hegðun, en það er að sjálfsögðu ekki mitt að skipta mér af hegðun starfsfólks þessa fyrirtækis; því er frjálst að haga sér eins og það vill. Þess heldur segir hún atvikið tilefni til rannsóknar af hálfu hins opinbera. Það er dapurt að sjá atvinnuvegaráðherra forgangsraða slíkri forræðishyggju umfram frelsið og frjálslyndið. Það skiptir nefnilega máli hvað ráðherrar segja og hvaða skilaboð þeir senda frá sér. Skilaboð atvinnuvegaráðherra í þessu máli eru þau að ímynduð ásýndarrýrnun Íslands erlendis vegna hegðunar starfsmanns hvalveiðifyrirtækis vegi þyngra en frelsið, frjálslyndið og möguleg ásýndarrýrnun erlendis á grundvelli einmitt þeirrar forgangsröðunar ráðherrans. Það er ekki nóg að segjast vera frjálslynd þegar það hentar — það þarf líka að taka frjálslyndar ákvarðanir þegar á frelsið reynir. Höfundur er tölvunarfræðingur og talsmaður frjálslyndis Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalveiðar Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar