Formúla 1

Öku­menn hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring

Andri Broddason skrifar
Lewis Hamilton sagði að hann og fleiri ökumenn hafa áhyggjur að rafmagnsmótorinn verði batteríslaus á miðjum hring.
Lewis Hamilton sagði að hann og fleiri ökumenn hafa áhyggjur að rafmagnsmótorinn verði batteríslaus á miðjum hring. Mario Renzi /Formula 1 via Getty Images

Lewis Hamilton segir að það verði allt öðruvísi að keyra Silverstone-brautina í Bretlandi í bílum þessarar kynslóðar. Kvartanir ökumanna yfir bílunum virðast ætla að ná hámarki í breska kappakstrinum um helgina.

Breski kappaksturinn er þekktur fyrir að vera með mikið af hröðum beinum köflum ásamt löngum hröðum beygjum. Lítið er því um stóra bremsupunkta sem gefur rafmagnsmótornum í bílunum tíma til að hlaða. Ökumenn eru hræddir um að verða batteríslausir á miðjum hring.

Vélinni í Formúlu 1-bílunum í ár er skipt í tvennt þar sem einn helmingur er hefðbundinn bensínmótor en hinn helmingurinn rafmagnsmótor. Ökumenn búast við að þurfa að keyra hluta brautarinnar einungis á bensínmótornum þar sem bíllinn mun eiga í erfiðleikum með að hlaða batteríin.

Hamilton segir að ökumenn hafi spjallað sín á milli og talað um hvað það verði erfitt að keyra á Silverstone-brautinni í Bretlandi.

„Brautin verður allt öðruvísi. Vonandi munum við geta notið þess að keyra hröðu beygjurnar með fullu afli. Ég vona að það verði lagað fyrir næsta ár.“

Sigurvegari austurríska kappaksturisins síðustu helgi, George Russell, segir að kappaksturinn geti orðið skemmtilegur þrátt fyrir að bílarnir hafi minna afl.

„Kappaksturinn gæti verið áhugaverður. Ég held að 95 prósent áhorfenda taki ekki eftir því að bílarnir séu með minna afl. Þú tekur bara eftir því þegar þú horfir á kappaksturinn innan úr bílnum.“

Stjórnendur Formúlu 1 hafa tekið ákvörðun um að breyta hlutföllum milli bensíns og rafmagns í vélinni fyrir næstu tímabil. Það á vonandi að laga þessi vandamál með kraftminni bílum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×