Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júlí 2026 10:40 Ásmundur Rúnar Gylfason staðfesti í samtali við blaðamann að málið væri til rannsóknar hjá lögreglustöð 1. Aðsend/Vísir Stunguárás sem varð á níunda tímanum í gærkvöldi, þann 2. júlí, er ekki talin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi en mennirnir tveir sem um ræðir þekktust. Þá var greint frá því í gær að sérsveitin hafi verið kölluð til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en svo sagt að snúa við.
Er þetta meðal þess sem Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustöð eitt, staðfesti í samtali við fréttastofu Vísis. Hann segir manninn sem særðist hafa verið fluttan á slysadeild til aðhlynningar af vettvangi en að ekki sé um lífshættulega áverka að ræða. Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfesti við fréttastofu að sérsveitin hafi verið kölluð til aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en verið snúið við. Lögreglunni hafi því tekist að ráða við málið einni og sér. Ekkert ákveðið enn með gæsluvarðhald Sá sem beitti hnífnum hafi verið handtekinn skömmu eftir árásina en hann passaði við lýsingu sem lögreglan hafði fengið. Haft var eftir sjónarvotti að lítill vasahnífur hefði legið í jörðinni en einnig mátti sjá blóðug föt og blóðslettur á gangstétt við Grettisgötu, þar sem talið er að árásin hafi átt sér stað. Skýrsla verður tekin af hinum grunaða í dag og er málið í rannsókn á lögreglustöð eitt en ekki var talin ástæða til þess að senda málið yfir til miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar. Ásmundur segir að ekki liggi fyrir ákvörðun um hvort að hinn grunaði verði settur í gæsluvarðhald.
Lögreglumál Reykjavík Sjúkraflutningar Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Fleiri en einn hafi verið að verki Innlent Fleiri fréttir Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Sjá meira