Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. júlí 2026 07:46 Tyrknesku samfélagi ku stafa ógn af skemmtiferðaskipi fullu af hommum... og Patti LuPone. Getty Yfirvöld í Tyrklandi hafa neitað skemmtiferðaskipinu Scarlet Lady um heimild til að sigla í höfn í hafnarbænum Kuşadası þar sem farþegarnir samræmast ekki samfélagslegum gildum íbúa. Skemmst er frá því að segja að um borð eru 2.000 hommar.
Til stóð að Scarlet Lady kæmi til hafnar í Kuşadası á morgun en það hóf tíu daga siglingu í Aþenu í gær. Ferðin er á vegum bandaríska fyrirtækisins Atlantis Events en samkvæmt framkvæmdastjóra félagsins hefur það staðið fyrir ferðum þar sem lagt hefur verið að bryggju í Kuşadası og Istanbul alls þrettán sinnum á síðustu 25 árum. Rich Campbell sagði í samtali við CNN að ákvörðun yfirvalda hefði komið verulega á óvart og að um væri að ræða fyrsta og eina skiptið í 36 ára sögu fyrirtækisins þar sem því hefði verið neitað um að sigla í höfn. „Þetta er bara sláandi, í hreinskilni sagt,“ segir Campbell. „Og ég meina, ástæðan er sú að þetta er hópur samkynhneigðra. Mér finnst það mikið áhyggjuefni þegar ríki ákveður að það geti valið hvaða túristum það hleypir inn og hverjum ekki.“ Fyrirtækið hafi freistað þess að fá ákvörðuninni hnekkt og meðal annars haft samband við sendiráð Bandaríkjanna í Tyrklandi en án árangurs. Áætlunum hefur verið breytt og lagt verður að bryggju í Kaíró og á Krít í staðinn fyrir að stoppa í Tyrklandi. Leik- og söngkonan Patti LuPone, sem mun koma fram á skipinu, tjáði sig um málið á samfélagsmiðlum og sagðist öskureið. „Atlantis-skipinu þar sem ég á að koma fram í næstu viku hefur verið bannað að koma til Tyrklands,“ sagði hún. „Skipi... stórkostlegu skipi, fullu af vel settum hommum. Og mér. Neitað um að koma til Tyrklands bara vegna þess hver er um borð.“ Samkynhneigð er ekki bönnuð í Tyrklandi en fordómar útbreiddir. Þar eru ráðamenn ekki undanskyldir en forsetinn Recep Tayyip Erdogan hefur til að mynda oftsinnis kallað hinsegin fólk „perverta“.
Tyrkland Hinsegin Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira