Tyrkland

Tyrkland

Höfuðborg: Ankara. Mannfjöldi: 87,5 milljónir (2025). Flatarmál: 783.356 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Sagðir undir­búa stórsókn gegn Hútum

Ráðamenn í Sádi-Arabíu eru sagðir skipuleggja stórsókn gegn Hútum í Jemen. Meðal annars kemur til greina að reka Húta frá stöndum Bab el-Mandebsunds, en vera þeirra þar gerir Hútum kleift að loka öðrum enda Rauðahafs. Sóknin yrði leidd af sveitum ríkisstjórnar Jemen, og nyti stuðnings Sáda úr lofti og ráðgjafar og upplýsinga frá Bandaríkjamönnum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Eiður aug­lýsir tyrk­neska hárígræðsluklíník

Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnuþjálfari, sparkspekingur og fyrrverandi landsliðsmaður, kemur fyrir í nýrri auglýsingu tyrkneska skurðlæknisins Dr. Cinik sem sérhæfir sig í hárígræðslum. Sýnt er frá því þegar Eiður fór í hárígræðslu í klíník læknisins í Istanbúl í fyrra auk þess sem hár hans er sýnt fyrir og eftir hárígræðsluna.

Lífið
Fréttamynd

Æðstu her­foringjar halda skyndifund um á­rásir Húta

Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa boðað yfirmenn herafla Tyrklands og Pakistan á fund þar sem ræða á hvernig ríkin tvö geta stutt Sáda vegna árása Húta í Jemen. Æðstiklerkur Sádi-Arabíu hefur kallað eftir því að hermenn konungsríkisins verði tilbúnir til að leggja lífið að veði í baráttunni gegn Hútum.

Erlent
Fréttamynd

„Sannar­lega á­huga­verð gjöf“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir skammbyssuna sem hún fékk að gjöf frá Tyrklandsforseta vera sannarlega „áhugaverða gjöf“. Gripurinn verður gerður óvirkur í Noregi.

Innlent
Fréttamynd

Fylgjendafjöldi Krist­rúnar fimm­faldast

Kristrún Frostadóttir vakti greinilega athygli heimamanna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi í vikunni. Fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur fimmfaldast og farið úr 20 þúsundum í rúm 107 þúsund á fjórum dögum. Nýju fylgjendurnir virðast flestir vera Tyrkir og hafa færslur Kristrúnar fyllst af tyrkneskum ummælum.

Lífið
Fréttamynd

Fengu öll á­letraða skamm­byssu að gjöf frá Erdogan

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna.

Innlent
Fréttamynd

Trump sló harðan tón við upp­haf leið­toga­fundar NATO

Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.

Erlent
Fréttamynd

NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu

Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. 

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún og Þor­gerður á NATO-fundinum í Ankara

Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands.

Innlent
Fréttamynd

NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann.

Erlent
Fréttamynd

Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju

Yfirvöld í Tyrklandi hafa neitað skemmtiferðaskipinu Scarlet Lady um heimild til að sigla í höfn í hafnarbænum Kuşadası þar sem farþegarnir samræmast ekki samfélagslegum gildum íbúa. Skemmst er frá því að segja að um borð eru 2.000 hommar.

Erlent
Fréttamynd

Ekki vopna­hlé um páskana heldur regn sjálf­sprengi­dróna

Rússneskur sjálfsprengidróni varð fimm mönnum að bana og særði 19 aðra í borginni Nikopol í austurhluta Úkraínu á laugardag en Rússar hafa hert árásir sínar að degi til í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran. Zelensky hefur boðið fram aðstoð vegna Hormússunds en hann segir Úkraínumenn hafa öðlast sérþekkingu í stríði sínu við Rússa.

Erlent
Fréttamynd

Skutu niður eld­flaugar í land­helgi Tyrk­lands

Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram. 

Erlent
Fréttamynd

Gæti Ís­land dregist inn í á­tökin?: Eld­flaug frá Íran skotin niður í loft­helgi Tyrk­lands

Tyrkneska varnarmálaráðuneytið greindi frá því fyrr í dag að varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins hefðu skotið niður eldflaug sem skotið var frá Íran og var á leið inn í lofthelgi Tyrklands. Sérfræðingur í varnarmálum segir líklega meira þurfa til að 5. grein Atlantshafssáttmálans verði virkjuð og að Ísland dragist inn í þau átök sem nú standa yfir.

Erlent
Fréttamynd

Tyrkir vilja sendi­ráð á Ís­landi

Á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi sá síðarnefndi frá að Tyrkir hyggjast koma á fót sendiráði hér á Íslandi. 

Innlent
Fréttamynd

Mót­mæla og biðla til utan­ríkis­ráð­herra

Samfélag Kúrda á Íslandi hefur boðað til mótmæla í dag og krefst tafarlausrar aðgerða vegna alvarlegrar stöðu Kúrda í Sýrlandi og Tyrklandi. Talsmaður hópsins segir kallar eftir því að utanríkisráðherra beiti sér fyrir vopnahléi.

Innlent
Fréttamynd

Þrír lög­reglu­þjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir á­tök í Tyrk­landi

Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og sex vígamenn Íslamska ríkisins liggja í valnum eftir bardaga þeirra á milli í Tyrklandi í morgun. Átta lögregluþjónar og öryggisvörður eru særðir eftir átökin, sem áttu sér stað í Elmali, suður af Istanbul. Lögregluþjónar eru sagðir hafa gert áhlaup á hús þar sem vígamennirnir héldu til.

Erlent