Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2026 08:30 Hugrún Helga Stefánsdóttir. Defend Iceland hefur ráðið Hugrúnu Helgu Stefánsdóttur í stöðu markaðsstjóra.
Í tilkynningu segir að hún taki við starfinu með traustan bakgrunn innan fyrirtækisins en undanfarin tvö ár hafi hún gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun markaðsstarfs hjá fyrirtækinu. Í nýju hlutverki muni Hugrún leiða stefnumótun í markaðsmálum með það að markmiði að auka vitund um mikilvægi fyrirbyggjandi netvarna og auka sýnileika fyrirtækisins bæði á innlendum og alþjóðlegum mörkuðum. Hugrún er með meistaragráðu í stafrænni markaðssetningu frá ESEI International Business School og BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Um Defend Iceland segir að það hafi frá stofnun unnið að því að breyta því hvernig fyrirtæki og stofnanir nálgist netöryggi. Í stað þess að bíða eftir netárásum byggi fyrirtækið á fyrirbyggjandi nálgun þar sem öryggisfræðingar og heiðarlegir hakkarar leiti markvisst að veikleikum áður en þeir geti valdið rekstrartruflunum, gagnalekum eða fjárhagslegu tjóni.
Netöryggi Vistaskipti Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira