Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júlí 2026 10:30 Verð á Brent-hráolíu hækkaði um 5,6 prósent í kjölfar ummæla Trumps. Þetta sé mesta dagshækkun á olíuverði síðan í lok maí. Eric Gay/AP Markaðsverð á hráolíu hækkaði um rúm fimm prósent eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta um að bráðabirgðarvopnahléi milli Bandaríkjanna og Íran væri lokið.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið í skyn að viðræðum við Írani um mögulegt vopnahlé milli ríkjanna sé lokið . „Hvað mig varðar þá er bara tímasóun að eiga við þá. Þeir eru lygarar... Það er eitthvað að þeim. Þeir eru klikkaðir. Hvað mig varðar þá er þetta búið,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun þar sem leiðtogafundur NATO fer fram. Verð á Brent-hráolíu hækkaði um 5,6 prósent og verð bandarískrar hráolíu um 5,8 prósent, að sögn AP, í kjölfar ummæla Trumps. Þetta sé mesta dagshækkun á olíuverði síðan í lok maí. Nú seljist tunna af Brent-olíu á 78 dollara en bandaríska olían á rúma 74 dollara. Trump segir samningsnefndir Bandaríkjanna geta haldið viðræðum áfram en telur það tímasóun. Bandaríkin hófu árásir á Íran á ný í gær sem hefndaraðgerðir við árásum Írans á þrjú olíuflutningaskip á Hormússundi. Í kjölfar árásanna afturkallaði Bandaríkjastjórn undanþágu frá viðskiptaþvingunum á sölu íranskrar olíu. Undanþágan, sem heimilaði Íran að selja olíu, var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átakanna á milli Bandaríkjanna og Íran.
Bensín og olía Íran Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Jarðefnaeldsneyti Neytendur Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira