Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Árni Sæberg skrifar 8. júlí 2026 13:28 Una Jónsdóttir er aðalhagfræðingur Landsbankans. Vísir/Vilhelm Greiningadeild Landsbankans spáir því að verðbólga standi í stað í 5,2 prósentum í júlímælingu en aukist í 5,4 prósent í ágústmælingu, meðal annars vegna hækkunar á komugjaldi á heilsugæslustöðvar. Mælist verðbólga yfir 4,7 prósentum í ágúst má slíta kjarasamningum.
Í pistli á vef Landsbankans segir að greiningardeildin spái því að vísitala neysluverðs hækki um 0,34 prósent á milli mánaða í júlí og að ársverðbólga verði því áfram 5,2 prósent. Hagstofan birti júlímælingu vísitölu neysluverðs fimmtudaginn 23. júlí. „Við gerum ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda hafi lang mest áhrif til hækkunar í mánuðinum. Sumarútsölur hafa hins vegar áhrif til lækkunar, ásamt eldsneytisverði sem hefur lækkað um 3 prósent frá síðasta mánuði, samkvæmt verðathugun okkar. Við gerum ráð fyrir að eldsneytisverð lækki frekar í næsta mánuði en teljum ólíklegt, miðað við núverandi spá, að verðbólga mælist undir forsenduákvæði kjarasamninga.“ Flugið tuttugu prósentum dýrara en í fyrra Þá segir að flugfargjöld til útlanda hafi verið tæplega tuttugu prósentum dýrari í ár en í fyrra. Í júní hafi þau hækkað töluvert umfram spá deildarinnar og kostað um 28 prósentum meira en í júní í fyrra. Deildin ráð fyrir að flugfargjöld til útlanda hækki um 15,2 prósent milli mánaða í júlí og verði um 23 prósentum dýrari en á sama tíma í fyrra. Flugfargjöld hækki jafnan í júní og júlí en lækki svo í ágúst. Deildin geri ráð fyrir að sumarútsölurnar verði svipaðar og í fyrra og að verð á fötum og skóm lækki um 5 prósent milli mánaða nú í júlí. Útsölutakturinn á fötum og skóm hafi breyst eftir heimsfaraldurinn. Fyrir faraldurinn hafi verð á fötum og skóm yfirleitt lækkað um rúmlega 10 prósent í janúar- og júlíútsölum, en eftir faraldur hafi verð á fötum og skóm lækkað minna. Deildin geri ráð fyrir að útsölurnar gangi til baka í ágúst og september. Áhrif af sumarútsölum sjáist yfirleitt líka í húsgögnum og heimilisbúnaði sem gert sé ráð fyrir að lækki um 1,5 prósent nú í júlí. Eldsneyti lækkað en sveiflist mikið Verð á eldsneyti hafi lækkað um rétt tæplega 3 prósent frá síðasta mánuði, samkvæmt verðathugun greiningardeildarinnar. Heimsmarkaðsverð á olíu hafi lækkað talsvert síðasta mánuðinn en hafi svo hækkað lítillega aftur síðustu daga. Greint var frá því í dag að eldsneytisverð hefði tekið kipp eftir að vopnahlé í Mið-Austurlöndum rann út í sandinn. „Við gerum ráð fyrir því að lækkanir komi áfram fram í eldsneytisverði hér á landi næsta mánuðinn, en það ræðst áfram að miklu leyti af sveiflum á heimsmarkaðsverði olíu,“ segir deildin. Húsnæðisliðurinn áfram þyngstur Þá segir að árshækkun matarkörfunnar hafi mælst 3,9 prósent í júní og hefði lækkað töluvert frá því í ársbyrjun, þegar hún mældist 6,8 prósent. Deildin geri ráð fyrir að matarkarfan hækki um 0,23 prósent milli mánaða í júlí og yrði árshækkun því áfram rétt um 4 prósent, gangi spáin eftir. Húsnæðisliðurinn sé enn sá liður sem skýrir stærstan hluta verðbólgunnar, en framlag hans hafi þó minnkað jafnt og þétt síðustu mánuði. Af 5,2 prósenta verðbólgu í ársbyrjun hafi reiknuð húsaleiga skýrt 2,2 prósentustig. Í júní hafi framlagið verið 0,3 prósentustigum minna, eða 1,9 prósentustig af 5,2 prósenta verðbólgu. Framlag liðarins sé því að dragast hægt og rólega saman og gert sé ráð fyrir að sú þróun haldi áfram næstu mánuði. Deildin spái því að reiknuð húsaleiga hækki um 0,5 prósent milli mánaða og annar kostnaður vegna húsnæðis hækki um 0,2 prósent. Hækkun á heilsugæslum á versta tíma Loks segir að skammtímaspá greiningardeildarinnar hafi sveiflast nokkuð allra síðustu mánuði. Það skýrist að mestu af óvissu tengdri stöðunni fyrir botni Persaflóa og áhrifum hennar á olíuverð, en einnig hafi flugfargjöld til útlanda komið deildinni þó nokkuð á óvart í júní. „Við spáum nú minni verðlækkun á bensíni í júlí en við gerðum ráð fyrir í lok júní þegar Hagstofan birti júnímælingu vísitölunnar. Á móti gerum við ráð fyrir meiri lækkun í ágúst. Nýlega hafi verið tilkynnt að komugjald á heilsugæslu yrði hækkað úr 500 krónum í 1.000 krónur frá og með 1. ágúst. Samkvæmt mati deildarinnar verði áhrifin af því um 0,1 prósentustig til hækkunar á ársverðbólgu í ágúst. „Spá okkar fyrir næstu mánuði er að vísitalan hækki um 0,34 prósent í júlí og 0,03 prósent í ágúst, lækki um 0,03 prósent í september og hækki um 0,16 prósent í október. Gangi spáin eftir mun verðbólga mælast 5,2 prósent í júlí, 5,4 prósent í ágúst, 5,3 prósent í september og 5,0 prósent í október. Spáin er lítillega hærri en síðasta spá okkar, sem birt var eftir júlímælingu Hagstofunnar. Munurinn skýrist einkum af minni lækkun eldsneytisverðs í júlí en áður var gert ráð fyrir og vegna hærri komugjalda á heilsugæslu í ágúst.“
Verðlag Efnahagsmál Landsbankinn Íslenska krónan Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira