Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar 8. júlí 2026 14:30 Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með fréttum að Trump, forseti Bandaríkjanna hefur gert sjálfan sig að helsta fréttaefni leiðtogafundarins í Ankara með yfirlýsingum um óánægju með Atlantshafsbandalagið, hótunum um að draga bandarískt herlið frá Evrópu og ítrekun á ásetningi um að ná fullum yfirráðum yfir Grænlandi. Spánverjar, sem hafa verið tregafullir bandamenn fram til þessa, sæta hótunum um viðskiptabann vegna árásar Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran þar sem Trump forseta þykir þá ekki hafa sýnt nægan stuðning við ofangreinda árás. Sem var, til að halda því til haga, ákveðin án samráðs við Evrópu eða NATO. Árás án skilgreindra markmiða sem hefur opnað ormagryfju stórfelldra hernaðarátaka í Mið-Austurlöndum sem ekki sér fyrir endann á. Og lokað Hormuz-sundi fyrir skipaumferð sem hefur haft mikil og alvarleg áhrif á efnhagslíf heimsins. Sem er miður því Atlantshafsbandalagið hefur verið samstíga í að auka eigin hernaðarmátt og varnarviðbúnað, þ.m.t. stuðning við Úkraínu sem háir tilvistarstríð gegn árásum Rússa. Yfirgangur Rússa og brot gegn fullveldi og sjálfstæði Úkraínu er öryggisógn við alla Evrópu. Ísland er þar ekki undanskilið, þó svo að margir telja landið vera utan alfaraleiðar og þar með ekki í hættu ef Rússar hafa betur gegn Úkraínu. En forseti Bandaríkjanna hefur á sinn sjálfhverfa hátt tryggt að skilaboðin frá leiðtogafundinum eru ekki samheldni og samstaða gegn þessari öryggisógn í Evrópu heldur vafi á því hvort Bandaríkin muni koma öðrum aðildarþjóðum til aðstoðar ef fimmta grein bandalagsins er virkjuð. Rússar sem fylgjast vel með leiðtogafundinum hljóta að gleðjast yfir þessu. Íslenskir stjórnmálamenn segja að það eigi ekki að skemmta skrattanum, en raunveruleikinn er sá að það er staðan í dag, því miður. Forsætisráðherra Danmerkur hefur enn á ný þurft að endurtaka fyrri yfirlýsingar um að Grænland sé ekki til sölu og bætir við að Danir munu verja Grænland ef brotið er á fullveldi ríkjasambandsins. Danskir stjórnmálamenn segja þetta vitandi það ef til hernaðarátaka kemur á milli Danmerkur og Bandaríkjanna standa þeir fyrrnefndu höllum fæti. Eigi að síður er því slegið föstu af þeirra hálfu að Danir munu taka til varna ef þörf krefur. Sama hvernig fer. Þetta er djörf yfirlýsing og ákvörðun. Geri Trump, forseti alvöru úr þeim hótunum að beita valdi til að ná yfirráðum yfir Grænlandi verður því mætt af fullri hörku af hálfu danskra stjórnvalda. Þeir munu taka til varna! Sem er ekki hægt að segja um Íslendinga eða varnarstefnu íslenskra stjórnvalda. Þó að hættumatið í þverpólitískri skýrslu Alþingis um varnir landsins sé skýrt, er niðurstaðan eftir sem áður sú að útvista alfarið öllum landvörnum til erlendra aðila, þ.e. NATO og Bandaríkjamanna. Íslendingar ætla ekki að verja eigið sjálfstæði og fullveldi. Það eiga aðrir að gera það. Það er ekkert ákall frá erlendum bandalagsþjóðum að Íslendingar komi á fót eigin varnarviðbúnaði segja sumir og telja ástæðu til að gera ekkert. En það er ekki erlendra bandalagsþjóða að segja okkur fyrir verkum. Það er okkar að ákveða hvaða landvarnir við viljum hafa í samvinnu við bandalagsþjóðir. Og á meðan Íslendingar segja pass þegar að kemur að eigin varnarviðbúnaði er sú hætta fyrir hendi að við getum ekki tekið til varna þó svo að við stöndum frammi fyrir augljósri og raunverulegri tilvistarógn. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Mest lesið Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar