Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júlí 2026 16:37 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ásamt Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og Recep Tayyip Erdoğan forseta Tyrklands. Stjórnarráðið Aukin framlög til varnarmála og framlag Evrópu og Kanada til sameiginlegra varna, efling varnariðnaðar og öflugur stuðningur við Úkraínu voru í forgrunni leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Ankara í Tyrklandi í dag. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands sóttu fundinn.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu en þar segir að bandalagsríki í Evrópu og Kanada hafi aukið kjarnaframlög sín til varnarmála um tæp tuttugu prósent frá því í fyrra og þannig „sýnt í verki í verki aukna ábyrgð af sameiginlegum vörnum bandalagsins til móts við Bandaríkin.“ Leiðtogar bandalagsins hafi ákveðið á leiðtogafundi í Haag í fyrra að stórauka framlög til varnarmála. Bandalagsríkin hafi ítrekað stuðning sinn við varnarbaráttu Úkraínu fyrir frelsi andspænis innrásarstríði Rússa. „Bandalagsríkin standa sameinuð í staðföstum stuðningi sínum við Úkraínu við að verja frelsi sitt, fullveldi og landhelgi,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu sem hafi verið samþykkt einróma við lok fundarins. „Í ljósi þeirrar alvarlegu og langvarandi ógnar sem bandalaginu stafar af Rússlandi er öryggi Úkraínu samofið öryggi bandalagsríkja. Stuðningur við Úkraínu er því fjárfesting í okkar eigin öryggi og styður beint við þá grundvallarhagsmuni sem fullveldi Íslands byggist á, það er alþjóðakerfinu og virðingu fyrir alþjóðalögum,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í tilkynningunni. Leiðtogar NATO ásamt Mark Rutte, framkvæmdastjóra bandalagsins.Stjórnarráðið Einnig hafi staða mála á Miðausturlöndum og á Hormússundi verið til umræðu. Utanríkisráðherra NATO hafi fundað með Katar, Kúveit, Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum, samstarfsríkjum úr Persaflóa. Þá hafi varnarmálaráðherrar bandalagsins fundað með samstarfsríkjum í Indó-Kyrrahafinu, Japan, Suður-Kóreu, Nýja-Sjálandi og Ástralíu, um aukin framlög til varnarmála, uppbyggingu varnariðnaðar og stuðning við Úkraínu. „Öflugur varnariðnaður þvert á Atlantsála er mikilvæg undirstaða fælingar og varna bandalagsins og eru bandalagsríki að fjárfesta í aukinni framleiðslugetu og nýsköpun samhliða auknum framlögum til varnarmála,“ segir í tilkynningunni. Utanríkisráðherra og varnarmálaráðherrar Danmerkur, Kanada, Noregs og Þýskalands hafi undirritað viljayfirlýsingu um aðild Íslands að samstarfsvettvangi ríkjanna sem miði að því að efla getu, eftirlit og öryggi á Norður-Atlantshafi (e. Maritime Security Partnership).
NATO Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira