Wolfsburg með nýjustu fréttir af Eriksen Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2026 19:00 Christian Eriksen var heiðraður fyrir að spila 150 landsleiki fyrir leikinn örlagaríka á móti Úkraínu í byrjun júní. Getty/Vitalii Kliuiev Framtíð danska knattspyrnumannsins Christian Eriksen er skiljanlega í miklu uppnámi eftir að hann hné niður öðru sinni í landsleik á dögunum.
Wolfsburg, sem Christian Eriksen er samningsbundinn til sumarsins 2027, gaf út yfirlýsingu um stöðu danska landsliðsmannsins, sem hneig niður í æfingaleik gegn Úkraínu þann 7. júní. „Christian Eriksen mun bráðlega hefja einstaklingsmiðaða endurhæfingu. Eftir samtöl við yfirmann knattspyrnumála hjá Wolfsburg, Dieter Hecking, hefur verið ákveðið að hinn 34 ára gamli leikmaður muni ljúka henni í heimalandi sínu, Danmörku,“ segir í yfirlýsingunni. Það er að heyra á öllu að Eriksen sé þrátt fyrir allt ekki búinn að afskrifa það að snúa inn á knattspyrnuvöllinn aftur. Christian Eriksen preparing for RETURN to football - despite being warned 'it's just a matter of time' until another terrifying sudden collapse, a month on from his latest heart problem https://t.co/XYmGv5LFf3— Daily Mail Sport (@MailSport) July 9, 2026 „Wolfsburg er í nánu sambandi við Eriksen og meðferðaraðila hans. Við óskum Christian áfram alls hins besta í endurhæfingunni,“ skrifar félagið á X. Tilkynningin kemur þremur dögum eftir að Wolfsburg greindi frá því að Christian Eriksen hefði fengið meiri tíma til að íhuga hvort hann ætti að halda knattspyrnuferlinum áfram. Í leik á EM 2020 þann 12. júní 2021 hneig Eriksen niður á vellinum eftir að hafa farið í hjartastopp. Hann fékk hjartahnoð og síðar voru ígræddar í hann bjargráður. Hann sneri aftur til knattspyrnu átta mánuðum síðar og gekk til liðs við Brentford í ensku úrvalsdeildinni, áður en hann færði sig yfir til Manchester United tímabilið á eftir. Hjá United vann hann ensku bikarkeppnina og deildabikarinn áður en hann yfirgaf félagið eftir tímabilið 2024–2025. Update zu Christian Eriksen Christian Eriksen wird in Kürze mit einem individuellen Rehaprogramm beginnen. Nach einem Gespräch mit VfL-Geschäftsführer Dieter Hecking wurde entschieden, dass der 34-Jährige dies in seiner Heimat Dänemark absolvieren wird. Der VfL ist in… pic.twitter.com/Wrm6oqzT3G— VfL Wolfsburg (@VfL_Wolfsburg) July 9, 2026
Danski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Sjá meira