Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. júlí 2026 13:31 Viktoría Beckham og Mel C voru saman í Spice Girls. Dave Hogan/Getty Images Kryddpían Mel C var næstum því rekin úr stúlknabandinu Spice Girls eftir orðaskak við samstarfskonu sína Viktoríu Beckham. Þetta gerðist eftir BRIT verðlaunahátíðina fyrir tuttugu árum síðan en Mel C rifjaði atvikið upp í hlaðvarpi á dögunum.
Kryddpíurnar eða Spice Girls voru á árunum 1994-2001 einhver stærsta hljómsveit í heimi og seldu upp á tónleika um allan heim. Sveitin var skipuð bresku skvísunum Mel B, Mel C, Emmu Bunton, Geri Halliwell og Viktoríu Beckham. Hljómsveitin var dýrkuð og dáð af mörgum, gagnrýnd og jafnvel hötuð af öðrum. View this post on Instagram A post shared by Louis Theroux (@officiallouistheroux) Mel C var gestur í hlaðvarpi fjölmiðlamannsins Louis Theroux og deildi þar ýmsum sögum úr lífi stelpnanna, þar á meðal þess sem gerðist 1996. „Við vorum að fara af BRIT hátíðinni og vorum að leita að bílnum okkar. Ég man ekki nákvæmlega hvað var í gangi en ég sneri mér við og sagði „Viktoría, fokkaðu þér. Ég fer svo heim, fer að sofa og þegar ég vakna daginn eftir var ég í mjög vondum málum,“ segir Mel C en hún sagði ekki nánar frá kveikju rifrildisins. Öðrum hljómsveitarmeðlimum misbauð hegðun hennar og endaði Mel C á að vera kölluð á fund með umboðsmanni sveitarinnar. „Þar var mér sagt að ef eitthvað þessu líkt myndi gerast aftur þá yrði ég rekin á stundinni. Ég var algjörlega að fríka út því ég hélt að ég myndi missa bókstaflega allt. Ég hélt ég væri búin að eyðileggja barnæskudrauminn, sem var loksins byrjaður að rætast.“ Hún átti erfitt með að hrista þessa tilfinningu af sér og að lokum fór þetta að hafa mikil áhrif á andlega heilsu hennar. „Eitthvað svona pínulítið sem mér fannst ekki það hræðilegt hafi getað eyðilagt drauminn minn. Því varð ég ofur meðvituð um allt sem ég gerði og reyndi að stjórna öllu í lífi mínu. Það hræddi mig svo mikið að missa stjórn og geta misst allt. Mér fannst ég þurfa að vera algjörlega fullkomin til að eiga eitthvað af þessu skilið.“
Tónlist Bretland Hollywood Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira