Jafnteflið tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Sindri Sverrisson skrifar 15. júlí 2026 09:03 Daníel Hafsteinsson skoraði fyrir Víkinga í gær og kom liðinu áfram í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. vísir/Anton Íslandsmeistarar Víkings halda áfram að raka inn milljónum með mögnuðum árangri í Evrópukeppnum. Þeir komust áfram í 2. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar með því að slá út Ungverjalandsmeistara ETO í gær og tryggðu sér um leið um það bil 107 milljónir króna, til viðbótar við verðlaunaféð sem þegar var tryggt.
Sigur Víkinga í einvíginu við ETO, samtals 3-2 eftir að Daníel Hafsteinsson og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu í 2-2 jafntefli í Ungverjalandi í gær, var á allan hátt gríðarlega mikilvægur. Fyrir það fyrsta þá skila þessi úrslit dýrmætum stigum í kassann fyrir íslenskan fótbolta, á stigalista UEFA, sem hjálpar til við að verja stöðu íslenskra félagsliða sem núna eiga eitt sæti í undankeppni Meistaradeildar, eitt í undankeppni Evrópudeildar og tvö í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Hafa nú þrjú tækifæri til að komast í aðalkeppni Sigurinn þýðir jafnframt að Víkingur fær nú þrjú tækifæri til að tryggja sig inn í aðalhluta Sambandsdeildar Evrópu, líkt og liðið gerði fyrir tveimur árum, og liðið á auðvitað enn möguleika á að komast frekar inn í aðalhluta Meistaradeildarinnar eða Evrópudeildarinnar. Undankeppnirnar í þessum þremur Evrópukeppnum eru nefnilega samtvinnaðar og ef lið fellur úr leik í Meistaradeild færist það í Evrópudeild, og þaðan í Sambandsdeild. Víkingar mæta næst ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva, í 2. umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Tap þar myndi senda liðið í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Tap þar myndi senda liðið í umspil um sæti í Sambandsdeildinni. Vinni Víkingur eitt af þessum þremur einvígum er að lágmarki sæti í Sambandsdeildinni tryggt og því fylgir hátt í hálfur milljarður króna til viðbótar við fyrra verðlaunafé. Búnir að tryggja sér að lágmarki 244 milljónir Með því að slá út ETO fór Víkingur frá því að vera öruggur um að spila tvö Evrópueinvígi í sumar í að vera öruggur um að spila fjögur. Liðið fór frá því að vera öruggt um að fá 350.000 evrur (sem fást falli lið úr leik í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar) í að vera öruggt um að lágmarki 750.000 evrur (sem fást falli lið úr leik í umspili Sambandsdeildar). Félagið fær líka 175.000 evrur fyrir hverja spilaða umferð og fór því frá því að fá 2 x 175.000 evrur í að fá 4 x 175.000 evrur, eða 700.000 evrur. Þá fást 260.000 evrur ef lið fellur út án þess að ná inn í aðalkeppni. Þetta þýðir að Víkingur hefur tryggt sér 1.710.000 evrur, eða um 244 milljónir króna, og að upphæðin jókst um 750.000 evrur, eða 107 milljónir króna, með sigrinum í einvíginu við ETO. Í þessu sambandi er vert að hafa í huga að þátttöku í Evrópukeppnum fylgir einnig mikill kostnaður við ferðalög. Verðlaunaféð gæti svo orðið mun hærra ef Víkingar komast til dæmis inn í Sambandsdeildina en grunnupphæðin fyrir það afrek er 3,17 milljónir evra.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira