„Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. júlí 2026 10:30 Fótbolta-fjölskyldan flutti heim til Íslands frá Sádi-Arabíu. Á mynd eru Árni Vilhjálmsson og Sara Björk Gunnarsdóttir ásamt syni þeirra Ragnari Frank. haukar fótbolti / hulda margrét Árni Vilhjálmsson er spenntur fyrir samkeppninni um framherjastöðuna hjá Stjörnunni og hlakkar mikið til að spila loksins fyrir framan fjölskylduna aftur, þó hann hafi ekki ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins.
Eftir áralangt flakk um hin ýmsu lönd í atvinnumennsku erlendis, nú síðast í Sádi-Arabíu, og í ljósi stríðsátakanna sem brutust út í Mið-Austurlöndum ákváðu Árni og kona hans, Sara Björk Gunnarsdóttir, að snúa aftur heim til Íslands. „Ég held að aðalatriðið hafi bara verið að við erum með strák, sem er að eldast, og hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands. Svo voru náttúrulega bara erfiðar kringumstæður þarna, það var margt í gangi þarna síðustu mánuðina. Fjölskyldan var farin að kalla aðeins á okkur líka. Það var svo erfitt fyrir þau að sjá leiki þarna í Sádi. Þau voru farin að vilja fá okkur nær, og nú geta þau eytt tveimur tímum í hverri viku að horfa á okkur,“ sagði Árni í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Sara Björk samdi við Hauka í síðasta mánuði.haukar fótbolti / hulda margrét Sara Björk sneri heim í Hauka en Árni fór ekki aftur til síns uppeldisfélags, Breiðabliks, heldur gerði hann þriggja ára samning við nágrannalið Stjörnunnar í Garðabænum. „Ég átti samtöl við nokkur lið en það var ekkert sem fór lengra en með Stjörnunni. Það gerðist hratt og þegar viljinn er til staðar báðum megin þá gengur þetta hratt fyrir sig,“ sagði Árni en hann var einnig orðaður við lið KR. Með komu Árna er framherjastaðan hjá Stjörnunni ein sú best mannaða á landinu. vísir / ÍVAR Samkeppnin sem bíður Árna, um framherjastöðuna hjá Stjörnunni, er ekki af verri endanum. Þar má nú þegar finna tvo mikla markahróka, Emil Atlason og Andra Rúnar Bjarnason. „Á sama tíma er líka bara ótrúlega spennandi að spila með þeim. Við erum allir mjög ólíkir, með okkar eiginleika og styrkleika. Við erum ekki allir með sömu styrkleikana, þannig að þetta gæti hentað mjög vel fyrir okkur að spila saman. Ásamt öllum hinum leikmönnunum, Stjarnan er með ótrúlega góða sóknarmenn og bara lið í heild. Ég hlakka til að spila með þeim,“ sagði Árni að lokum.
Besta deild karla Stjarnan Haukar Sádiarabíski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira