Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar 17. júlí 2026 13:32 Ný samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sendir að sumu leyti jákvæð skilaboð til íbúa á Vesturlandi. Þar er meðal annars gert ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar, þjóðvegar 1, á kaflanum frá Hvalfjarðargöngum að Borgarnesi. Það eru jákvæð tíðindi enda er um einn fjölfarnasta kafla þjóðvegar landsins að ræða og leið sem þúsundir ökumanna fara um á hverjum degi. Það dregur hins vegar úr ánægjunni að samkvæmt samgönguáætlun eru þessar framkvæmdir ekki fyrirhugaðar fyrr en á síðara tímabili hennar, á árunum 2031–2035. Að mínu mati er það of seint. Umferð á þessari leið eykst ár frá ári og öryggisvandinn verður ekki leystur með því að bíða í nær áratug eftir fyrstu skóflustungu. Þess vegna þarf nú þegar að taka ákvörðun um hvar framkvæmdir hefjast og hraða þeim eins og kostur er. Fyrr í vikunni skrifaði ég blaðagrein um hversu brýnt það er að bæta umferðaröryggi í Hvalfjarðarsveit. Þar benti ég meðal annars á að Vesturlandsvegur, sem liggur að stórum hluta um sveitarfélagið, væri einn þeirra vegakafla þar sem hættulegur framúrakstur væri of algengur og þar sem alvarleg slys hafa því miður átt sér stað. Þeir sem aka þessa leið reglulega þekkja vel þá spennu sem skapast þegar ökumenn reyna að nýta stutta glugga til framúraksturs á vegi sem ræður sífellt verr við þá umferð sem hann ber. Í því ljósi skiptir máli að horfa ekki eingöngu til þess að bæta veginn. Við eigum að hefja markvissa tvöföldun hans og gera það þar sem mestur ávinningur næst fljótt. Í skýrslu Viðskiptaráðs Íslands um innviðafjárfestingar, sem kynnt var í vikunni, kemur fram að það sé meðal hagkvæmustu samgönguverkefna landsins að ljúka uppbyggingu Vesturlandsvegar milli Hvalfjarðarganga og Borgarness. Ávinningurinn sé augljós; færri alvarleg slys, meiri afkastageta, styttri ferðatími, aukin verðmætasköpun og sterkari tengingar milli höfuðborgarsvæðisins og Vestur- og Norðurlands. Þetta er því ekki aðeins öryggismál. Hér er einnig um að ræða þjóðhagslega skynsamlega fjárfestingu. Það sem skiptir hins vegar mestu máli núna er að velja réttan upphafspunkt. Að mínu mati, sem leikmanns í vegamálum en jafnframt stórnotanda þessarar leiðar, blasir hann við. Á Hafnarmelum eru aðstæður með þeim hætti að tiltölulega hagfellt ætti að vera að ráðast í gerð hátt í tíu kílómetra langs 2+2 vegakafla. Þótt samgönguáætlunin geri almennt ráð fyrir 2+1 vegi tel ég að á þessum kafla séu aðstæður með þeim hætti að rétt sé að stíga skrefið til fulls. Þar eru umhverfis- og jarðvegsaðstæður hagfelldar, framkvæmdir ættu að vera einfaldari en víða annars staðar og ávinningurinn yrði umtalsverður fyrr en samgönguáætlun gerir ráð fyrir. Aðrir hlutar umræddar leiðar eru flóknari á ýmsan hátt m.t.t. skipulags- og annarra umhverfis- og innviðaþátta. Þetta er framkvæmd sem myndi skila árangri frá fyrsta degi. Hún myndi draga úr hættulegum framúrakstri, bæta umferðarflæði og auka öryggi allra sem ferðast um Vesturlandsveginn. Um leið yrði hún táknræn og raunhæf byrjun á þeirri vegferð að byggja upp nútímalegan þjóðveg milli Hvalfjarðarganga og Borgarness. Of oft hafa stór samgönguverkefni beðið eftir því að hægt sé að ráðast í alla framkvæmdina í einu. Sú nálgun leiðir gjarnan til þess að ekkert gerist árum saman. Með því að hefja framkvæmdir þar sem þær eru bæði hagkvæmastar og einfaldastar í framkvæmd má ná verulegum öryggisávinningi fljótt og byggja síðan áfram í áföngum eftir því sem skipulag, fjármunir og framkvæmdaáætlanir leyfa. Vesturlandsvegur er ekki aðeins samgönguæð innan Hvalfjarðarsveitar. Hann er mikilvægur hluti af þjóðvegi 1 og tengir höfuðborgarsvæðið við Vesturland, Vestfirði og stóran hluta Norðurlands. Þess vegna snýst þetta ekki um hagsmuni eins sveitarfélags heldur um öryggi og hagsmuni alls landsins, bæði í öryggis- og atvinnulegu tilliti. Ég skora á innviðaráðherra, Alþingi og Vegagerðina að hraða uppbyggingu Vesturlandsvegar og gera Hafnarmela að fyrsta framkvæmdakaflanum. Það er engin ástæða til að bíða fram á árin 2031–2035 með að hefja framkvæmdir á kafla þar sem aðstæður eru hagstæðar og ávinningurinn augljós. Þannig yrði stigið raunverulegt fyrsta skref í átt að öruggari þjóðvegi – skref sem myndi bjarga mannslífum, bæta samgöngur, styrkja samkeppnishæfni landsbyggðarinnar og sýna að þegar góð tækifæri eru til staðar sé þeim fylgt eftir með ákvörðunum og athöfnum. Höfundur er sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalfjarðarsveit Umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson Mest lesið 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Skoðun Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð Birna G. Magnadóttir skrifar Skoðun Hvenær verður nóg nóg? Borgar Antonsson (Boggi Tona) skrifar Skoðun Hvað merkir íslenskt nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Meðaltalið borgar ekki húsaleiguna Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Geta stofnanir sparað og bætt þjónustuna? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver ber kostnaðinn þegar landinu er lokað? Friðrik Árnason skrifar Skoðun Dýnamík hópeineltis, hóphegðun fína og ófína fólksins Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar Skoðun Umferð í Reykjavík og samgönguásar höfuðborgarsvæðisins Elías B Elíasson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Hvar liggja mörk sjálfræðis? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ferðaþjónustan gerir Ísland skemmtilegra Ragnhildur Ágústsdóttir skrifar Skoðun Um helmingur lækna á Landspítala í fullu starfi Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Gervigreindin og ragnarök: Raunveruleg hætta eða mesta svikamylla sögunnar? Hólmfríður Gísladóttir skrifar