Viðskipti innlent

Ekki króna í þrota­búi Lucky records

Árni Sæberg skrifar
Plötur fást enn í Lucky records þótt samnefnt einkahlutafélag sé farið á hausinn.
Plötur fást enn í Lucky records þótt samnefnt einkahlutafélag sé farið á hausinn. Vísir/Vilhelm

Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabú plötuverslunarinnar Lucky records, sem námu alls 24,1 milljón króna.

Þetta kemur fram í auglýsingu um skiptalok félagsins Lucky records ehf., sem birt var í Lögbirtingablaðinu á dögunum. Þar segir að skiptum hafi lokið í apríl síðastliðnum, án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, auk áfallinna vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta.

Líkt og Vísir greindi frá á sínum tíma var bú félagsins tekið til gjaldþrotaskipta í lok janúar síðastliðins.

Verslunin er nú rekin af öðru félagi, Plötur og diskar ehf., sem stofnað var síðasta sumar.

„Staðan er þessi að það hefur annar rekstraraðili tekið við vörumerkinu sem heitir Plötur og diskar og sá rekstraraðili ætlar að halda vörumerki Lucky records enn þá á lífi og viðskiptavinir þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að koma að lokuðum dyrum,“ sagði Ingvar Geirsson, stofnandi Lucky records, í svari við fyrirspurn Vísis á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×