Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. júlí 2026 06:56 Íranir hafa sakað Bandaríkjamenn um að gera árásir á samgönguinnviði í landinu. Getty/Morteza Akhoundi Byltingavörðurinn í Íran hefur hótað því að ekki einn einasti dropi af olíu eða gasi muni komast um Hormússund ef Bandaríkjamenn halda áfram árásum sínum á landið.
Í yfirlýsingu sagði að sprengingar hefðu átt sér stað um borð í tveimur olíuflutningaskipum sem hefðu verið að sigla svokallaða „suðurleið“, eftir að yfirvöld vestanhafs hefðu sagt þá leið örugga. Siglingar á sundinu yrðu hins vegar ekki öruggar fyrr en Bandaríkjamenn létu af árásum sínum. Þá hétu Íranir hefndaraðgerðum. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir önnur ríki þurfa að stíga fram og leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi á sundinu. Spurður að því hvort menn teldu enn möguleika á að ná samkomulagi við Írana sagði Rubio Bandaríkjastjórn alltaf opna fyrir diplómatískum lausnum en Íranir þyrftu þá að skuldbinda sig til að standa við gefin loforð. Bandaríkin gerðu árásir á skotmörk í Íran níundu nóttina í röð. Enn og aftur voru þær sagðar miða að því að draga úr getu Írana til að ráðast á skip á Hormússundi. Byltingavörðurinn sagðist hafa svarað með árásum á hernaðarinnviði Bandaríkjanna í Kúveit og á bandarískar flugvélar á Aqaba-flugvelli í Jórdaníu. Þrír bandarískir hermenn hafa fallið í árásum Írana síðustu daga. Heildarfjöldi látinna Bandaríkjamanna stendur í sautján frá því að árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hófust. Um 420 eru sagðir hafa særst. Íranir segja 50 hafa látist og yfir 500 særst í árásum Bandaríkjanna síðustu þrjár vikur.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Fleiri fréttir Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Sjá meira