Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó Samúel Karl Ólason skrifar 20. júlí 2026 09:10 Heilbrigðisstarfsfólk að störfum í austurhluta Austur-Kongó. EPA/DIEUDONNE DIROLE Ekkert lát virðist vera á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 37 létu lífið á laugardaginn, sem er með því mesta frá því faraldurinn hófst. Í heildina hafa að minnsta kosti 930 dáið í Austur-Kongó eftir að hafa smitast af ebólu, svo vitað sé, en 2.344 hafa greinst smitaðir.
Meðal þeirra sem hafa smitast og látið lífið eru að minnsta kosti 36 heilbrigðisstarfsmenn. Þeir hafa staðið í ströngu við að reyna að koma böndum á útbreiðslu veirunnar og á sama tíma verjast árásum frá almenningi og vopnuðum mönnum. Margir trúa því ekki að ebóla sé raunveruleg og frá því í maí hafa verið skráðar að minnsta kosti tólf árásir á starfsstöðvar heilbrigðisfólks eða hópa af því. Í einhverjum tilfellum hafa þessar starfsstöðvar og meðferðarstöðvar verið brenndar til grunna. Heilbrigðisstarfsmenn hafa einnig staðið í verkföllum, þar sem þeir segjast í mörgum tilfellum ekki hafa fengið greitt fyrir störf sín. Faraldurinn sem hófst í vor hefur breiðst hratt út. Útbreiðslan er sú mesta sem skráð hefur verið. Þá er veiran að mestu í dreifingu í fimm héruðum Austur-Kongó þar sem öryggisástandið hefur um langt skeið verið slæmt. Það slæma ástand hefur einnig komið niður á viðbrögðum yfirvalda við faraldrinum, samkvæmt AP fréttaveitunni. Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, varaði við því á dögunum að flestir sem greinast smitaðir hafi ekki verið utan smitrakningar, sem bendir til þess að útbreiðslan sé umfangsmeiri en opinberar skráningar benda til. Hann sagði einnig að átök í Austur-Kongó kæmu verulega niður á vörnum gegn veirunni og kallaði eftir því að heilbrigðisstarfsmenn fengju frekari varnir. Two months into the #Ebola outbreak in the #DRC, intense transmission in Ituri province is our primary concern.More than 2,000 cases and almost 800 deaths have been reported. Most new cases are being detected outside known contact lists, and two-thirds of deaths are occurring… pic.twitter.com/NNzstyWqSW— Tedros Adhanom Ghebreyesus (@DrTedros) July 17, 2026 Þetta er sautjándi faraldurinn í Austur-Kongó síðan ebóla greindist fyrst þar árið 1976. Talið er að veikin hafi fyrst borist í menn úr leðurblökum og er áætlað að um fimmtán þúsund manns hafi dáið í Afríku vegna ebólu á undanförnum fimmtíu árum. Síðasta faraldri í Austur-Kongó lauk formlega í maí 2021. Þrjár mismunandi veirur valda ebólu og dreifast þær manna á milli með líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra. Sjá einnig: Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Til er bóluefni gegn einungis einni af veirunum sem valda ebólu. Þessi faraldur er vegna dreifingar Bundibugyo-veirunnar en ekkert bóluefni er til við henni, né meðferðarúrræði. Hún er sú sjaldgæfasta af veirunum þremur sem valda ebólu og hefur einungis tvisvar sinnum áður verið í dreifingu, svo vitað sé. Það var í Úganda árið 2007 og Austur-Kongó árið 2012. Ebóla hefur einnig greinst í Úganda en þar hafa viðbrögðin gengið betur en í Austur-Kongó. Útlit er fyrir að þar hafi útbreiðslan verið stöðvuð, samkvæmt starfsmönnum WHO þar. Good news for Uganda’s #Ebola response!The last confirmed Ebola patient has been discharged after testing negative twice, marking the start of the 42-day countdown to the end of the outbreak.WHO commends the @MinofhealthUG, health workers, communities, and partners for their… pic.twitter.com/KXTP2I28iw— WHO Uganda (@WHOUganda) July 16, 2026
Ebóla Austur-Kongó Úganda Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira