Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Ebóla dreifist hraðar manna á milli í Austur-Kongó en hægt er að bregðast við henni. Þá eru heilbrigðisstarfsmenn á svæðinu þar sem faraldurinn er verstur í verkföllum vegna vangoldinna launa. Að minnsta kosti 3.874 hafa smitast og 1.751 hefur dáið. Erlent 6.8.2026 10:37
Ebólan komin í metstærð á mettíma Ekkert lát virðist á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Skráð tilfelli fóru í gær í 3.262 og er það næstum því til jafns við versta faraldurinn í landinu. Vitað er til þess að 1.437 hafa dáið vegna veirunnar en skráningar eru að öllum líkindum langt frá því að ná utan um raunverulega útbreiðslu veirunnar. Erlent 29.7.2026 10:04
Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó Ekkert lát virðist vera á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 37 létu lífið á laugardaginn, sem er með því mesta frá því faraldurinn hófst. Í heildina hafa að minnsta kosti 930 dáið í Austur-Kongó eftir að hafa smitast af ebólu, svo vitað sé, en 2.344 hafa greinst smitaðir. Erlent 20.7.2026 09:10
Hættir við æfingabúðir af ótta við ebólu Landslið Austur-Kongó hefur hætt við fyrirhugaðar æfingabúðir af ótta við ebólusmit en mikill faraldur geysar þar í landi. Fótbolti 20. maí 2026 22:37
Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Nýr ebólufaraldur hefur greinst í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 65 eru látnir en að minnsta kosti 246 eru smitaðir. Veikin hefur greinst í dreifingu í Ituri-héraði í Austur-Kongó og þá aðallega í tveimur bæjum við stórar gullnámur. Erlent 15. maí 2026 15:52
Lifandi styttan í stúkunni grét í leikslok Ævintýri Kongó á Afríkumótinu í fótbolta lauk í gærkvöldi og þar með lauk aðkomu nú hins heimsfræga Michel Kuka Mboladinga að mótinu. Sport 7. janúar 2026 14:13
Stuðningsmaður stendur heilu leikina eins og stytta Stuðningsmaður Austur-Kongó hefur slegið í gegn á Afríkumótinu í fótbolta fyrir ótrúlega þrautseigju. Maðurinn stendur eins og stytta í heilan fótboltaleik, til heiðurs Patrice Lumumba, sjálfstæðishetju þjóðarinnar. Fótbolti 31. desember 2025 11:04
Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Nígeríumenn vonast til að endurvekja vonir sínar um að komast á HM karla í fótbolta 2026 með kvörtun til FIFA vegna ólöglegra leikmanna Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í umspilsleik þeirra í síðasta mánuði. Fótbolti 17. desember 2025 12:01
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20. ágúst 2025 13:01
Yfir 50 látist af völdum óþekktra veikinda í Austur-Kongó Fleiri en 50 hafa látist af völdum óþekktra veikinda í norðvesturhluta Austur-Kongó. Veikindanna varð fyrst vart hjá þremur börnum sem höfðu borðað dauða leðurblöku. Erlent 26. febrúar 2025 07:54
Vara við fordæmalausu kynferðisofbeldi gegn börnum Hermenn Austur-Kongó og aðrar sveitir sem styðja herinn hafa hörfað frá flugvelli skammt frá borginni Bukavu í austurhluta Austur-Kongó. Uppreisnarmenn M23 hafa tekið flugvöllinn og útlit er fyrir að þeir stefni á árásir á Bukavo, sem yrði önnur stóra borgin á svæðinu til að falla í hendur þeirra. Erlent 14. febrúar 2025 15:28
Óttast að átök verði að stóru stríði Uppreisnarmenn M23 hafa hótað því að gera árás á borgina Bukavu, höfuðborg Suður-Kivu héraðs í Austur-Kongó. Óttast er að átökin milli hersins og uppreisnarmannanna, sem njóta stuðnings Rúanda, muni leiða til umfangsmikils stríðs. Erlent 11. febrúar 2025 17:09
Götubörn útsett fyrir kynferðisofbeldi: „Það er engin miskunn“ Ástandið í Goma í Austur-Kongó er verulega slæmt eftir að borgin féll á dögunum í hendur uppreisnarmanna en þar hafa tugir þúsunda barna búið á götum borgarinnar. Kynferðisofbeldi er algengt en konur og kannski sérstaklega börn eru gífurlega berskjölduð fyrir því. Erlent 7. febrúar 2025 14:44
Hundruðum kvenfanga nauðgað og þær brenndar lifandi Hundruðum kvenfanga var nauðgað og þær brenndar lifandi í borginni Goma í Austur-Kongó, eftir að hún féll í hendur uppreisnarmanna M23 og hers Rúanda í síðustu viku. Þegar fangelsi borgarinnar féll sluppu þaðan þúsundir manna en ráðist var á þann væng fangelsisins þar sem konunum var haldið. Erlent 5. febrúar 2025 16:52
Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Uppreisnarmenn sem lögðu á dögunum undir sig eina stærstu borg Austur-Kongó sækja nú fram að annarri borg. Meðlimir M23, sem njóta stuðnings frá yfirvöldum í Rúanda, eru nú á leið til suðurs frá borginni Goma í átt að Bukavu, sem er höfuðborg Suður-Kivu héraðs. Erlent 29. janúar 2025 18:24
Ein stærsta borg Austur-Kongó í höndum uppreisnarmanna Þúsundir íbúa einnar stærstu borgar Austur-Kongó og nærliggjandi byggða hafa flúið heimili sín eftir að uppreisnarmenn, studdir af yfirvöldum í Rúanda, tóku hana. Leiðtogar uppreisnarhópsins M23 segja Goma hafa fallið í nótt en það er höfuðborg héraðs sem kallast Norður-Kivu. Erlent 27. janúar 2025 18:04
Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Þrír kínverskir ríkisborgar voru handteknir með tólf gullstangir og 800 þúsund Bandaríkjadali (um 113 milljónir íslenskra króna) í seðlum í Austur-Kongó. Erlent 5. janúar 2025 22:01
Rúmlega hundrað köfnuðu eða krömdust við flóttatilraun Yfirvöld í Austur-Kongó segja að minnst 129 fangar hafi látið lífið við að reyna að strjúka úr fangelsi í Kinshasa, höfuðborg landsins, á aðfaranótt sunnudags. Minnst 59 eru sagðir slasaðir og segjast yfirvöld hafa náð tökum á ástandinu. Erlent 3. september 2024 11:22
Apabóla greinist í Svíþjóð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lýst yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu apabólu. Sjúkdómurinn hefur breiðst hratt út í Afriku og fyrsta tilfellið þar fyrir utan greindist í dag í Svíþjóð. Erlent 15. ágúst 2024 20:05
Gleymdu börnin Mikið öngþveiti er í litlu sveitaþorpi í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þegar ég keyri í gegnum þorpið. Bílstjórinn minn hægir á bílnum og leggur við hlustir. ,,Hann stal barni!“ hrópar maður og bendir á mótorhjól sem þýtur úr þorpinu. Mér er sagt að þetta sé því miður daglegt vandamál á þessu svæði. Skoðun 17. apríl 2024 14:01
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. Erlent 21. febrúar 2024 13:33
Héldu fyrir munninn þegar eigin þjóðsöngur var spilaður Leikmenn landsliðs Kongó vöktu allir sem einn athygli á hryllilegu ástandi í heimalandinu þegar þeir spiluðu einn stærsta fótboltaleikinn í sögu þjóðarinnar i gærkvöldi. Fótbolti 8. febrúar 2024 08:00
Myrtu hátt í fjörutíu nemendur í skóla í Úganda Uppreisnarmenn með tengsl við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams eru sakaðir um að myrða 41 mann, þar af 38 nemendur, í heimavistarskóla í Úganda nærri landamærunum að Austur-Kongó á föstudagskvöld. Sum fórnarlambanna voru brennd til bana. Erlent 18. júní 2023 08:51
Shaq handboltans og Shaq sjálfur ætla að stofna handboltadeild í Bandaríkjunum Shaq handboltans og Shaquille O'Neal sjálfur gætu tekið höndum saman til að koma handboltadeild á laggirnar í Bandaríkjunum. Handbolti 11. janúar 2023 11:00