Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. júlí 2026 14:51 Jason Alexander hefur beðist afsökunar á sketsinum sem hann tók upp með sautján ára gamallri Courtney Stodden. Leikarinn Jason Alexander, þekktastur fyrir leik sinn í Seinfeld, hefur beðið raunveruleikastjörnuna Courtney Stodden opinberlega afsökunar vegna óviðeigandi skets sem þau tóku upp saman þegar hún var sautján ára. Stodden varð heimsfræg sextán ára gömul þegar hún giftist 51 árs gamla leikaranum Doug Hutchison og berst í dag fyrir því að lágmarksgiftingaraldur verði hækkaður í átján ár í Kaliforníu.
Stodden varð að raunveruleikastjörnu eftir að hún giftist Hutchison árið 2011, kom fram í spjallþáttum og lék sautján ára gömul í grínsketsi á vegum Funny or Die á móti Jason Alexander. Leikarinn lék þar óþægilegan spjallþáttastjórnanda og nuddaði farsíma upp að brjósti Stodden því það væri eina svæðið með „nóg af símasambandi“. Átján ára Stodden og 51 árs Hutchison í desember 2011. Stodden sem er 31 árs í dag birti mynd úr sketsinum í Instagram-færslu í vikunni og furðaði sig á sköpun hans. „Ég var sautján ára gömul á þessari mynd. Því eldri sem ég verð, því ómögulegra verður það fyrir mig að skilja hann. Í sketsinum nuddaði Jason Alexander síma sínum við brjóstin mín og sagði að það væri „ekkert samband“ í höfðinu mínu en „nóg samband“ í brjóstunum,“ skrifaði hún við færsluna. „Seinna í sketsinum grínaðist hann með að þegar ég yrði átján ára væri hann til í að taka mig aftur fyrir sófann og „fá sínu framgengt“ með mér. Hann er skráður á IMDB sem einn af höfundum þáttarins,“ skrifaði hún jafnframt. „Ég var undir lögaldri. Ég hafði ekki lagalegt bolmagn til að ákveða hvort ég vildi taka þátt. Samningarnir voru undirritaðir af fullorðnum. Launatékkinn fór til Dougs [Hutchison]. Framleiðslan hélt áfram. Ég var eina barnið í herberginu og mér leið svo einni.“ View this post on Instagram A post shared by Courtney MF Stodden (@courtneyastodden) „Þegar ég lít til baka núna sé ég ekki grín. Ég sé sautján ára stelpu og líkama hennar sem varð hluti af fullorðinsgríni. Fólk segir samt: „Þú ákvaðst að vera þarna.“ Lagalega gat ég ekki tekið þær ákvarðanir sjálf. Það er punkturinn,“ skrifaði hún jafnframt. „Ég get ekki breytt því sem gerðist en ég get spurt sjálfa mig: Hve margir fullorðnir sáu barn og ákváðu að þetta væri í lagi. Þess vegna hef ég hátt í dag. Börn eiga skilið lög sem vernda þau. Þau ættu ekki að þurfa að fullorðnast til að átta sig á því að lögin hefðu átt að vernda þau allan tímann.“ Jason Alexander brást við færslu Stodden með því að biðja hana opinberlega afsökunar. „Þegar ég lít til baka á grínsketsinn sem ég og Stodden tókum þátt í árið 2012 þá er ég algjörlega sammála því að hann var óviðeigandi og ég sé eftir honum. Það sem meira er þá er ég innilega miður mín yfir þeim skaða sem hann olli Stodden. Ég biðst innilegrar fyrirgefningar,“ sagði Alexander í yfirlýsingu til fjölmiðla. Þrjátíu og fjögurra ára aldursmunur Courtney Stodden byrjaði að keppa í fegurðarsamkeppnum sem táningur og gaf út nokkur lög undir eigin nafni. Þegar hún var sextán ára sótti Stodden leiklistarnámskeið hjá Hollywood-leikaranum Doug Hutchison. Við tók fjögurra mánaða internetspjall milli þeirra tveggja sem endaði með því að þau giftu sig í maí 2011 með leyfi foreldra hennar. Hjónabandið vakti gríðarlega athygli, fjölskylda Hutchison afneitaði honum og leikaranum bárust líflátahótshótanir. Fjölmiðlaumfjöllun um hjónabandið varð til þess að hjónin fóru saman í raunveruleikaþættina Couples Therapy og Stodden keppti í Celebrity Big Brother. Stodden og Hutchison árið 2013 eftir að hafa verið gift í tvö ár. Hjónabandið entist til 2020 en hafði staðið á brauðfótum um árabil. Stodden berst nú fyrir því að Kalifornía samþykki lagafrumvarp þess efnis að lagalegur lágmarksgiftingaraldur verði átján ár.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Börn og uppeldi Mest lesið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira