Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. júlí 2026 21:25 Sindri Hrafn Guðmundsson vann gullið í spjótkasti karla á Meistaramóti Íslands sem hófst í dag. frí Keppni á hundraðasta meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum hófst á ÍR-vellinum í Mjóddinni í dag. Úrslitin réðust í spjótkasti karla og kvenna, stangarstökki kvenna og fjögur hundruð og fimmtán hundruð metra hlaupi karla og kvenna.
Öllu hefur verið tjaldað til í Skógarselinu vegna hundraðasta Meistaramótsins. Heiðursgestum er boðið að flytja ávörp, sögusýning hefur verið sett upp og keppendalistinn í ár þykir einkar sterkur. Hanna María Petersdóttir úr Fjölni hrósaði sigri í stangarstökki kvenna. Hún lyfti sér yfir 3,30 metra. Katrín Tinna Pétursdóttir varð önnur (3,20 metrar) og Eyrún Anna Höskuldsdóttir þriðja (3,10 metrar). FH-ingurinn Sindri Hrafn Guðmundsson vann afar öruggan sigur í spjótkasti karla. Lengsta kast hans var 80,80 metrar. Í 2. sæti varð Garðar Atli Gestsson með 65,09 metra kast. Bergur Sigurlinni Sigurðsson fékk svo bronsið með kasti upp á 55,73 metra. Munurinn var minni í kvennaflokki þar sem Arndís Diljá Óskarsdóttir úr FH stóð uppi sem sigurvegari. Hún kastaði spjótinu 48,92 metra. Bryndís Embla Einarsdóttir varð önnur (45,08 metrar) og María Rún Gunnlaugsdóttir þriðja (40,81 metri). Í fimmtán hundruð metra hlaupi kvenna kom Embla Margrét Hreimsdóttir úr FH fyrst í mark á 4:31,36 mínútum. Helga Lilja Maack varð önnur á 4:38,21 og Íris Anna Skúladóttir þriðja á 4:45,52. Gestur Daníelsson úr FH hrósaði sigri í fimmtán hundruð metra hlaupi karla. Hann hljóp á 3:59,54 sem er besti tími hans í greininni. Sindri Karl Sigurjónsson lenti í 2. sæti (4:03,56) og Jökull Bjarkason því þriðja (4:04,62). Hin fimmtán ára Eyrún Svala Gústavsdóttir úr Breiðabliki varð Íslandsmeistari í fjögur hundruð metra hlaupi kvenna. Hún kom í mark á 58,24 sekúndum sem er hennar besti árangur í greininni. Klara Sif Aronsdóttir varð önnur (1:00,30) og Sara Gunnlaugsdóttir tók bronsið (1:01,42). Í fjögur hundruð metra hlaupi karla vann Fjölnismaðurinn Kjartan Óli Bjarnason sigur. Hann hljóp á 48,47 sekúndum. Tómas Orri Gíslason varð annar á 49,25 sekúndum og þar á eftir kom Gabríel Glói Freysson á 49,92 sekúndum. Keppendur FH hafa náð í flest stig (16) á Meistaramótinu en þar á eftir kemur Fjölnir með níu stig.
Frjálsar íþróttir ÍR Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Sjá meira