Sport

Björg­vin Karl í fjórða sæti heimsleikanna

Andri Broddason skrifar
Björgvin Karl er í ágætu formi. Myndin er af Instagram síðu Björgvins Karls.
Björgvin Karl er í ágætu formi. Myndin er af Instagram síðu Björgvins Karls. Instagram - bk_gudmundsson

Björgvin Karl Guðmundsson og norska lið hans Crossfit Oslo Kriger eru í fjórða sæti CrossFit leikanna. Það munar aðeins tíu stigum á þeim og sænska liðinu í þriðja sæti.

Björgvin Karl Guðmundsson er að keppa í liðakeppni heimsleikanna í CrossFit og er liðið hans í fjórða sæti keppninnar eftir daginn í gær. Björgvin keppir fyrir norskt lið sem heitir CrossFitt Oslo Kriger. Þeir sem eru með honum í liði eru Kristin Holte, Oda Lundekvam, Tola Morakinyo, Victor Helsinghof og Var Thurmann-Moe.

Einnig er lið CrossFit Reykjavíkur að keppa en það er alíslenskt lið. Liðið þurfti þó að sætta sig við að enda gærdaginn í sjöunda sæti. Liðið getur þó bætt sig og endað hærra á töflunni í næstu keppnum. Í því liði eru Bjarni Leifs, Brynjar Ari Magnússon, Elín Birna Hallgrímsdóttir, Guðbjörg Valdimarsdóttir og Rökkvi Guðnason.

Bergrós Björnsdóttir er sem stendur í átjánda sæti einstaklingskeppninnar á heimsleikunum. Það er frábær árangur en hún á einnig möguleika á því að fara hærra á stigatöflunni í lokaþrautunum.

Keppnin heldur áfram í dag og hægt er að horfa á beint streymi frá leikunum á Youtube.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×