Formúla 1

Endur­koma For­múlu 1 til Malasíu stað­fest vegna stríðs­á­taka

Andri Broddason skrifar
Níu ár eru síðan Formúla 1 keppti síðast í Malasíu
Níu ár eru síðan Formúla 1 keppti síðast í Malasíu Lars Baron/Getty Images

Fresta þurfti Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 fyrr á árinu vegna átaka á svæðinu í kring. Nú hefur verið ákveðið að sá kappakstur sem átti að vera í Barein og var frestað verður haldinn í Malasíu.

Sepang-brautin nálægt Kuala Lumpur í Malasíu hefur áður haldið kappakstur í Formúlu 1 en hún var hluti af dagatalinu frá árinu 1999 til ársins 2017. Endurkoma Formúlu 1 þar verður í október þegar kappakstursbrautin tekur við Barein-kappakstirnum sem þurfti að fresta vegna átakanna í Mið-Austurlöndunum.

Aflýsa þurfti Sádí Arabíukappakstrinum sem átti að vera 19. apríl en ekki kemur annar kappakstur í staðinn fyrir hann. Síðustu tvær keppnir á dagatalinu eru í Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum en þær keppnir eru enn á dagskrá

Stjórn Formúlu 1 er þó að skoða aðra möguleika ef stríðið milli Bandaríkjanna, Ísrael og Íran verður áfram þegar keppnirnar eiga að fara fram. Ekki er búið að ákveða neinar breytingar en verið er að halda möguleikum opnum ef allt fer á versta veg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×