Viðskipti innlent

Rúm­lega fimm­tán milljarða hagnaður

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banki.
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banki. Vísir/Vilhelm

Arion banki hefur hagnast um rúmar 15 milljarða það sem af er ári sem er minna en á sama tíma á síðasta ári. Bankastjórinn segir bankann hafa náð öllum sínum fjárhagslegu markmiðum.

Hagnaður Arion banka var 8,1 milljarður króna á öðrum ársfjórðungi ársins samanborið við 9,8 milljarða króna á sama tímabili fyrir ári. Hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur, án rekstrarkostnaðar tryggingafélagsins Varðar, jukust um 0,8 prósent milli ára. Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur hagnaðurinn, sem tilheyrir hluthöfum bankans, verið 15,4 milljarðar króna.

Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 5,3 prósent frá árslokum 2025, einkum útlán til viðskipta.

Rekstur Varðar á öðrum ársfjórðungi skilaði hálfum milljarði króna og var samsett hlutfall 87,9 prósent en sé litið til síðustu sex mánaða var hagnaðurinn 400 milljónir króna og hækkar hann um tvö hundruð milljónir.

„Afkoma annars ársfjórðungs var góð og náðum við öllum okkar fjárhagslegu markmiðum, þar með talið markmiði um samsetningu eiginfjár,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu.

„Eins og síðustu ársfjórðunga var vöxtur í innlánum sem studdi við útlánavöxt, sérstaklega til fyrirtækja. Einnig var áfram mjög góður gangur í tryggingastarfsemi Varðar sem og sjóðastarfsemi Stefnis. Eigin- og lausafjárstaða er sem fyrr góð og styrkir okkur í áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn.“

Benedikt tekur fram að nýtt útibú Arion banka og Varðar í Reykjanesbæ hafi verið opnað í vor en það sé fyrsta nýja útibúið sem Arion banki opnar um árabil. Einnig hafi bankinn kynnt nýtt fríðindakerfi og verið valið besta bankaappið á Íslandi tíunda árið í röð.

Blikastaðaland í Mosfellsbæ sé komið í söluferli en aðeins opið fjárfestum sem hafa reynslu af framkvæmdum sambærilegra verkefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×