Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2026 13:32 Bræðurnir Elias og Boas Ellefsen á Skipagötu. Elias Ellefsen á Skipagötu er besti handboltamaður Færeyja og leikur með stórliði Kiel í Þýskalandi. Yngsti bróðir hans virðist einnig kunna ýmislegt fyrir sér miðað við byrjun hans á EM U-18 ára.
Boas Ellefsen á Skipagötu skoraði þrettán mörk þegar Færeyjar unnu Finnland, 38-31, í fyrsta leik sínum í F-riðli Evrópumóts U-18 ára í gær. Aðeins einn leikmaður skoraði fleiri mörk þegar fyrstu leikir mótsins fóru fram í gær; Ísraelinn Yonathan Pelach sem skoraði fjórtán mörk í 33-29 tapi fyrir Króatíu. Boas er að spila upp fyrir sig en hann er aðeins sextán ára. Hann fæddist 21. nóvember 2009 og er sjö árum yngri en Elias. Miðbróðirinn, hinn 22 ára Rói, er einnig handboltamaður. Boas leikur með H71 og var valinn leikmaður ársins í færeysku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann fékk einnig verðlaun fyrir að vera besti sóknarmaðurinn og besti nýliðinn í deildinni. Í kvöld fá Boas og félagar í færeyska liðinu erfitt verkefni en þá mæta þeir Spáni. Í lokaumferð riðlakeppninnar spila Færeyjar svo við Austurríki. Færeyjar hafa náð góðum árangri á undanförnum árum, bæði yngri landsliðin og svo hefur A-landsliðið komist á tvö Evrópumót og verður meðal þátttökuliða á HM í Þýskalandi í byrjun næsta árs.
Handbolti Færeyjar Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira