Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 5. ágúst 2026 19:29 Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður og náttúruverndarsinni flaug í dag með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-Gró að Sauðárflugvelli sem hann hafði veg og vanda að á sínum tíma. Hann segir brýnt að halda vellinum við öryggisins vegna. Fréttamaður Sýnar, Berghildur Erla Bernharðsdóttir slóst með í för. Vísir/Bjarni Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landhelgisgæslan heiðruðu Ómar Ragnarsson í dag með dagsferð á Sauðárflugvöll á hálendi Austurlands. Ómar kom flugvellinum á kortið í baráttu sinni fyrir náttúruvernd á Austurlandi og gegn Kárahnjúkavirkjun. Ómar segir brýnt að viðhalda flugbrautum þar og auka vitneskju um völlinn, öryggisins vegna.
Fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnarsson var einn ötulasti baráttumaður landsins gegn Kárahnjúkavirkjun á Austurlandi sem var byggð á árunum 2003-2007. Hann fór ótal flugferðir á vél sinni Frúnni að framkvæmdunum og myndaði náttúruna sem fór svo undir virkjun og lón. Ómar fann náttúrulegar flugbrautir nálægt virkjuninni norðan við Vatnajökul árið 2003 sem hann nefndi Sauðárflugvöll. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar við TF-Gró.Vísir/Bjarni Ómar sem fékk far í dag með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF- Gró á flugvöllinn segir afar brýnt að viðhalda honum. „Ég notaði völlinn mikið á sínum tíma og fann hvað það var mikið öryggisatriði að hafa völlinn hér,“ segir Ómar. Hann segir að það hafi kostað baráttu á sínum tíma að fá völlinn viðurkenndan. „Það tók fjögur ár að fá leyfi fyrir flugvellinum á sínum tíma og ég þurfti samþykki ellefu aðila til þess,“ segir hann. Þriðji stærsti völlur landsins Ómar segir völlinn með þeim stærstu hér á landi og hann hafi nýtt hann ótal sinnum. „Ég er búinn að fara svo margar ferðir á þennan völl að ég hef enga tölu á því. Þetta er þriðji stærsti flugvöllur á Íslandi fyrir utan Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll. Völlurinn er alls fimm flugbrautir,“ segir hann. Hann merkti flugbrautirnar sjálfur á sínum tíma ásamt eiginkonu sinni en segir að nú sé komið að viðhaldi. Það þarf að lagfæra merkingarnar okkar betur og í það þarf mannskap. Ford bíllinn sem hefur í áranna rás gegn hlutverki flugstöðvar og hótels á Sauðárflugvelli. Heimamenn segja kominn tími til að byggja lítið flugstöðvarhús á vellinum.Vísir/Bjarni Náttúruverndarsamtök heiðruðu Ómar Náttúruverndarfólk á Austurlandi ákvað að fá Ómar á flugvöllinn í dag til að vekja athygli á baráttu hans fyrir náttúrunni og vellinum í leiðinni. „Náttúruverndarsamtök Austurlands fóru þess á leit við Landhelgisgæsluna að hún kæmi með þennan aldna öðling hingað og heiðraði hann í leiðinni fyrir alla baráttu hans fyrir náttúrunni,“ segir Þórhallur Þorsteinsson talsmaður samtakanna og fyrrverandi einkaflugmaður. Þórhallur Þorsteinsson talsmaður Náttúruverndarsamtaka Austurlands og fyrrverandi einkaflugmaður. Samtökin höfðu frumvkæði að því að fá Ómar á Sauðárflugvöll.Vísir/Bjarni „Ég nýtti völlinn sjálfur mikið á sínum tíma og veit hvað það er mikið öryggisatriði að hafa hann í lagi. Hér þarf að byggja þjónustuhús og yfirfara merkingar. Það er flugklúbbur á Egilsstöðum og það væri vonandi hægt að fá félaga þar til að koma og mála merkingarnar hér,“ segir Þórhallur. Betri og betri völlur Ómar var sannfærður eftir daginn um að Sauðárflugvöllur væri kominn á kortið fyrir fullt og allt. „Þessi heimsókn með Landhelgisgæslunni var mikilvægt skref. Þetta er opinber stofnun, sem hefur nú sett ákveðinn stimpil á Sauðárflugvöll, Hér er hann og vonandi verður hann hér áfram, alltaf betri og betri,“ segir Ómar að lokum.
Egilsstaðaflugvöllur Landhelgisgæslan Flug Skógrækt og landgræðsla Vatnajökulsþjóðgarður Múlaþing Tengdar fréttir Ómar Ragnarsson handtekinn "Ég sat bara þarna og hreyfði mig ekki neitt, en núna er ég í lögreglubíl á leið í steininn,“ segir Ómar Ragnarsson náttúruvinur, sem var handtekinn rétt í þessu þar sem hann var viðstaddur mótmælin í Gálgahrauni. 21. október 2013 10:57 Ómar lands og þjóðar “Sumarfrí” er annar hljómdiskurinn í röðinni “Ómar lands og þjóðar “. Hér er finna lög og ljóð eftir Ómar Ragnarsson, bæði ný og gömul, sem öll fjalla um um land og þjóð. 24. júlí 2006 10:00 Svona sér Ómar sátt um flugvöll Flugmaðurinn sem lent hefur oftar á Reykjavíkurflugvelli en flestir aðrir, Ómar Ragnarsson, segir fáránlegt að einn besti möguleikinn til málamiðlunar verði strax útilokaður. 16. nóvember 2013 18:58 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira
Ómar Ragnarsson handtekinn "Ég sat bara þarna og hreyfði mig ekki neitt, en núna er ég í lögreglubíl á leið í steininn,“ segir Ómar Ragnarsson náttúruvinur, sem var handtekinn rétt í þessu þar sem hann var viðstaddur mótmælin í Gálgahrauni. 21. október 2013 10:57
Ómar lands og þjóðar “Sumarfrí” er annar hljómdiskurinn í röðinni “Ómar lands og þjóðar “. Hér er finna lög og ljóð eftir Ómar Ragnarsson, bæði ný og gömul, sem öll fjalla um um land og þjóð. 24. júlí 2006 10:00
Svona sér Ómar sátt um flugvöll Flugmaðurinn sem lent hefur oftar á Reykjavíkurflugvelli en flestir aðrir, Ómar Ragnarsson, segir fáránlegt að einn besti möguleikinn til málamiðlunar verði strax útilokaður. 16. nóvember 2013 18:58